Lýsing
KVISTAHLÍÐ 8 – FALLEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR OG STÓRUM SÓLPALLI
Rúmgott og vandað 212,5 fm einbýlishús á einni hæð við Kvistahlíð 8 á Sauðárkróki. Um er að ræða timburhús með Canexel klæðningu, byggt árið 2017, með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og innbyggðum 49,1 fm bílskúr. Húsið er með gólfhita með stýringu í hverju rými, innbyggðri lýsingu og stórum sólpalli í suður með skjólgirðingum. Góð aðkoma, þriggja bílastæða malarplan og gróin lóð.
✅ 212,5 fm einbýlishús á einni hæð
✅ Fjögur rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi
✅ Gólfhiti með stýringu í hverju rými
✅ Rúmgott eldhús með Kvik innréttingu og vönduðum AEG tækjum
✅ Innangengt í 49,1 fm bílskúr með hita og góðri aðstöðu
✅ Stór afgirtur sólpallur í suðurátt
Eignin skiptist í:
Forstofu, eldhús, stofu, gang, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð og með góðu aðgengi að rýmum hússins.
Eldhús: Hvít Kvik XL innrétting sem rúmar allt að 40% meira en hefðbundnar. Eyja með span helluborði, tveir bakaraofnar (annar með örbylgju), innbyggð uppþvottavél og tæki frá AEG. Rúmgóður borðkrókur, harðparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með harðparketi. Góð aðstaða fyrir borðstofu og útgengi á sólpall í suður með skjólgirðingu.
Herbergjagangur: Harðparket.
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Þrjú, öll rúmgóð með harðparketi á gólfum.
Baðherbergi I: Rúmgott, flísalagt gólf og fibo trespo veggir, upphengt salerni, hvít innrétting frá Kvik, línskápar báðum megin, walk-in sturta og handklæðaofn.
Baðherbergi II: Flísalagt gólf, upphengt salerni, baðinnrétting og útgengt í garð.
Þvottahús: Rúmgott, með góðri innréttingu og tengi fyrir vélar í vinnuhæð. Nýtist einnig sem auka inngangur.
Bílskúr: 49,1 fm með rafdrifnum hurðaopnara, vélslípuðu lökkuðu gólfi með hitalögnum og sérstýringu. Vinnuborð úr stáli og góð geymsluaðstaða.
Staðsetning:
Kvistahlíð 8 er í rólegu og barnvænu hverfi á Sauðárkróki með stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Fasteignamat 2026: 105.200.000
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat