Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Maríus Sævar Pétursson
Erla María Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Faxabraut 33

230 Reykjanesbær

49.000.000 kr.

601.227 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2087464

Fasteignamat

36.700.000 kr.

Brunabótamat

37.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1956
svg
81,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir glæsilega 3ja herbergja íbúð á Faxabraut 33 í Keflavík. Um er að 81,5 fm. þar af ris sem er skráð 18,7 fm. Eigninni tilheyra svalir og sameiginleg geymsla og þvottahús. Íbúðin er mjög vel skipulögð þar sem rýmið nýtist vel.
Frábær staðsetning, í göngufæri við alla helstu þjónustu þar á meðal íþróttasvæði, grunnskóla, framhaldsskóla, sundmiðstöð o.fl.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð, m.a. gluggar og útihurð, neysluvatnslagnir, ofnar, ný eldhús og baðinnrétting, gólfefni, innihurðar og íbúðin er nýmáluð að innan ofl.
Sprunguviðgerðir að utan voru unnar á síðasta ári, en eftir að mála húsið að utan.
Nánari lýsing:

Eldhús með flísum á gólfi og hvítri og svartri innréttingu með helluborði, ofni og örbylgjuofni ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með flísum á gólfi, þaðan er hurð út á svalir sem er með nýlegu viðargólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni og sturta, þar er hvít innrétting.
Svefnherbergin eru tvö með parketi á gólfum, annað mjög rúmgott með stórum fataskáp
Ris er rúmgott og snyrtilegt með parket á gólfi sem býður uppá ýmsa möguleika en þar er tenging fyrir tölvu og sjónvarp.
 
Á baklóð hússins er sameiginlegur garður og stór sameiginlegur pallur að framan. Sér bílastæði fylgir eigninni.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á es@es.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Eignamiðlun Suðurnesja

Eignamiðlun Suðurnesja

Hafnargata 50, 230 Reykjanesbæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. apr. 2023
29.850.000 kr.
39.500.000 kr.
81.5 m²
484.663 kr.
12. maí. 2022
23.100.000 kr.
38.650.000 kr.
81.5 m²
474.233 kr.
20. sep. 2016
11.400.000 kr.
16.700.000 kr.
81.5 m²
204.908 kr.
20. maí. 2016
11.400.000 kr.
16.000.000 kr.
81.5 m²
196.319 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignamiðlun Suðurnesja

Eignamiðlun Suðurnesja

Hafnargata 50, 230 Reykjanesbæ
phone