Lýsing
Ásabraut 1 er 7784 fm að stærð og uppgefið verð miðast við stofngjald leigulóðar en ársleiga yrði kr. 264.500 á ári. Í boði er samningur til 50 ára eða lengur ef óskað er. Hægt er að kaupa lóðina meðan á leigutímabilinu stendur en ársleiga gengur ekki upp í kaupverðið. Hægt er að skoða staðsetningu landsins hér og einnig er hægt að nálgast deiliskipulagið hér þar sem hægt er að þysja inn og út.
Hægt er að kaupa lóðina strax og þá sem eignarland á 5.100.000.-.
Samkvæmt deiliskipulagi má á lóðum sem eru undir 4500 fm byggja sumarhús að 100 fm. Sumarhús á lóðum sem eru stærri en 4500 fm skulu ekki vera stærri en 120 fm að stærð.
Kalt vatn og rafmagn er í götum en kaupandi greiðir heimtaugagjald.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is