Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
107,7 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
INNI fasteignasala s. 580 7905 - inni@inni.is
Gengið er inn í flísalagða forstofu með stórum fataskáp með rennihurðum. Lúga með stiga er í loftinu og er búið að smíða lítið geymsluloft. Inn af forstofu er flísalögð geymsla með glugga. Í íbúðinni eru fjögur parketlögð svefnherbergi, þar af þrjú með tvöföldum fataskáp og eitt hjónaherbergi með fjórföldum fataskáp. Baðherbergi er mjög rúmgott. Þar er flísalagt í hólf og gólf, upphengt klósett, sturta með gleri og góð innrétting með vaski og stórum speglaskáp. Þá er þar einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara sem eru í vinnuhæð. Eldhús og stofa eru í opnu, björtu rými með parketi á gólfum. Eldhúsinnrétting lítur mjög vel út og í henni eru ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Úr stofurými er gengt á 18fm steyptan pall og í garð. Tveir skjólveggir afmarka svæðið utan íbúðinnar. Undir þakskyggni báðum megin hússins eru led ljós. Innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi eru frá Brúnási og allir fataskápar í íbúðinni eru frá IKEA.
Teikningar eru fengnar af heimasíðu Fjarðabyggðar.
Staðsetning er fengin af heimasíðu ja.is.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. nóv. 2021
16.200.000 kr.
34.560.000 kr.
104.3 m²
331.352 kr.
18. jan. 2021
2.130.000 kr.
1.000.000 kr.
283.7 m²
3.525 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024