Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsileg og vel skipulögð 45,9 fm stúdíóíbúð í endurnýjuðu lyftuhúsi við Dunhaga 18-20 í næsta nágrenni við Háskóla Íslands. Íbúðin eru fullbúin með gólfefnum, ísskáp og uppþvottavél. Afhending er við kaupsamning. Bókið skoðun: Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Íbúð 305 er stúdíóíbúð á 3. hæð við Dunhaga 20. Íbúðin er fullbúin með eldhústækjum m.a. innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Innréttingar í eldhúsi baðherbergjum frá Voke3. Á öllum rýmum er harðparket nema flotrými sem er flísalagt. Geymsla sem er 7,8 fm fylgir með í kjallara.
Eignin skiptist í anddyri með fataskápum. Stofa og eldhús í opnu rými þaðan sem útgengt er á svalir sem snúa til suðausturs. Herbergi(ekki með hurð) með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni og sturta. Þvottaherbergi er sameiginleg í kjallara.. Sérgeymsla í kjallara 7,8 fm að stærð.
Allar nánari upplýsingar gefur :
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is