Lýsing
Sérlega fallega tveggja herbergja 74,4 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Skógarás 13 í Reykjavík. Mjög gott skipulag er á eigninni sem er björt og talsvert endurnýjuð.
Eignin er í átta íbúða fjölbýlishúsi í tengibyggingu þriggja fjölbýlishúsa sem standa á eignarlóð. Eigninni tilheyrir 36 fm einkalóð sem liggur út frá stofu.
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
✅ Mikið endurnýjuð tveggja herbergja íbúð á jarðhæð
✅ Sér inngangur og og 36 fm einkalóð út frá stofu
✅ Björt og falleg eign með vönduðum innréttingum
✅ Gott skipulag á eigninni og geymsla staðsett innan íbúðar
✅ Góð staðsetning í Árbænum
Nánari lýsing
Forstofa: Rúmgóð, flísar og harðparket á gólfi.
Gangur: Harðparket á gólfi.
Eldhús: Hvít sprautulökkuð innrétting, bakarofni, háfur, tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, flísar á gólfi.
Stofa: er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott, stórir fataskápar, harðparket á gólfi..
Baðherbergi: Rúmgott með baðkari og sturtu, flísar á gólfi og á veggjum við sturtu og baðkar, baðinnrétting með tveimur vöskum, upphengt salerni og handklæðaofn.
Geymsla: Sér rými innan íbúðar.
Sérlóð: Stór afgirtur sólpallur suð-vestan við húsið.
Um er að ræða sérlega fallega tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi og einkalóð við Skógarás 13 í Reykjavík.
Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Viðhald og endurbætur
- Skipt um parket 2025
- Skipt um bakaraofn í eldhúsi 2025
- Pallurinn lakkaður 2024 og 2025
- Skipt um rör undir vöskum í baðherbergi árið 2024
- Málað árið 2023
- Skipt um ljós í lofti árið 2023
- Nýir fataskápar frá IKEA með ljósi í svefnherbergi árið 2023
- Nýir listar á gólf 2023
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat