Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Vista
fjölbýlishús

BLÓMVANGUR 2 ÍBÚÐ 204

700 Egilsstaðir

39.500.000 kr.

552.448 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2278155

Fasteignamat

39.350.000 kr.

Brunabótamat

41.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
71,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÓMVANGUR 2 ÍBÚÐ 204, Egilsstöðum. Íbúð á annarri hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi í miðsvæðis á Egilsstöðum.
Stutt í alla almenna þjónustu, útsýni. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er steypt fjölbýlishús byggt árið 2005, eignin skiptist í íbúð, 63.2 m² og geymslu 8.3 m² samtals 71.5 m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS. 
Skipulag Íbúðar: Forstofa, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, svefnherbergi, baðherbergi.
Í sameign: Sér geymsla, þvottahús, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla. 

Nánari lýsing: 
Forstofa með fatahengi og skóhirslu, flísar á gólfi.
Gangur liggur innan við forstofu að öðrum rýmum íbúðar.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er úr stofu út á svalir.
Eldhús með upprunalegri innréttingu, helluborð, ofn, vifta og stálvaskur, uppþvottavél og ísskápur fylgir.
Tengi er fyrir þvottavél þar sem uppþvottavél er í eldhúsinnréttingu. 
Svefnherbergi með fataskáp. 
Baðherbergi, nýleg sturta með sturtubotni og tveimur glerhurðum, vegghengt salerni, vaskinnrétting og lítill veggskápur, flísar á gólfi. 
Gólfefni: Alrými, svefnherbergi og gangur, harðparketi frá Þ.Þorgrímssyni. Flísar á forstofu og baðherbergi.
Á jarðhæð í kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, ásamt sameiginlegri þvottaaðstöðu.
Sér geymsla 8,3 m² í kjallara. Málað gólf í sameign í kjallara. 

Íbúðin var endurnýjuð að hluta til árið 2020:
Skipt var um svalarhurð og opnanlegt fag í stofu. Nýtt harðparket lagt á íbúðina frá Þ.Þorgrímssyni.
Innveggir voru heilspartlaðir og málaðir af málarameistara.
Helluborð endurnýjað og blöndunartæki í eldhúsi, ásamt því að sett var upp tengi fyrir þvottavél í eldhúsi.
Sturtuhorn endurnýjað, nýjar fíboplötur í sturtuhorni á vegg, ný blöndunartæki og sturtubotn.

Húsið Blómvangur 2 er steypt þrjár hæðir og kjallari með tveimur utanáliggjandi stigahúsum. Tuttugu og þrjár íbúðir eru í húsinu.
Þak er flatt hefðbundið viðsnúið með pappa og fargi. Hellulögð stétt liggur að stigahúsum, malbikuð bílastæði, lóð er frágengin.
Lóð er sameiginleg 2.740,2 m² leigulóð í Múlaþings.

Skráning eignarinnar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fastanúmer 227-8155. Blómvangur 2 Múlaþing.

Stærð: Íbúð 63.2 m²​, geymsla 8.3 m²​. Samtals 71.5 m².
Brunabótamat: 39.000.000 kr.
Fasteignamat: 39.350.000.
Fasteignamat næsta árs, 2027 kr. 42.550.000,-.
Byggingarár: 2005.
Byggingarefni: Steypa
Eignarhald. 01 0204 - Séreign
01 0018 Geymsla 8.3 Brúttó m²​. 01 0204 Íbúð 63.2 Brúttó m²​. 01 0211 Svalir 10.2 Brúttó m²​.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Drífa Einarsdóttir, hefur lokið námi til fasteignasala - drifa@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. nóv. 2023
25.950.000 kr.
33.000.000 kr.
71.5 m²
461.538 kr.
2. maí. 2022
20.150.000 kr.
28.500.000 kr.
71.5 m²
398.601 kr.
20. mar. 2020
18.600.000 kr.
45.300.000 kr.
214.6 m²
211.090 kr.
17. okt. 2008
11.831.000 kr.
12.300.000 kr.
71.5 m²
172.028 kr.
26. maí. 2007
10.803.000 kr.
12.727.000 kr.
71.5 m²
178.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir