Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2007
svg
60,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.

Lýsing


Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu sumarhús við Kvistás 24 fasteignanúmer F230-7554 og landeignarnúmer L178613
póstnúmer 311 Borgarbyggð áður Kolbeinsstaðahreppi.

Kvistás 24 nefnt Hraunbrún er fallegt sumahús í skipulagðri frístundabyggð í landi Syðri-Rauðamels í Borgarbyggð sem er mikil náttúruperla. Lóðin 3.600 m2 leigulóð sem er í jaðri frístundabyggðarinnar með óvenju fallegu útsýni.
Húsið er timburhús, með standandi klæðningu, 60.2 m2 að stærð samkvæmt skráningu HMS, byggt árið 2007 en í raun 70.2m2.  Húsið stendur á steyptum undirveggjum og er hitað með rafmagni.  Að auki er 10 m2 gestahús, stakstæð geymsla sem er einangruð að hluta og leikkofi fyrir börn á lóðinni. Gestahús og geymsla eru ekki inn í skráði fermetratölu fasteignarinnar. 
Leigusamningur er í gildi til ársins 2048 og er ársleiga kr 89.200.-  Greitt kr 5.000.- á ári til félags sumarhúsaeigenda á svæðinu.

Nánari lýsing.  
Forstofa með flísum á gólfi með góðum fataskápum. Baðherbergi sem er flísalagt gólf innrétting og sturtuklefi. Svefnherbergi með parket á gólfi. Annað svefnherbergi eða  seturými sem hægt er að draga fyrir og nýta sem herbergi, parket á gólfi. Eldhús með parketi á gólfi og mjög góð 2ja ára innrétting. Gott skápapláss, uppþvottavél og ísskápur helluborð og eldavél, allt innbyggt í innréttingu og fylgir með. Stofan er vistleg björt með góðri kamínu. Parket á gólfi og gólfsíðir gluggar.  Gengið er úr stofu út á sólpall með skjólveggjum. Gestahús er 10 m2 einangrað og klætt. Parket á gólfi, tvær kojur og rúm. Geymsla einangruð að hluta með tvöfaldri hurð.
Frábær staðsetning í fallegu umhverfi. Eign sem vert er að skoða.
Bókaðu skoðun þegar þér hentar.
Tilvísunarnúmer 13-1724

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang:  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig:  fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Úlfar Freyr Jóhannsson lögmaður og lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 692 6906 ulfar@fasteignamidstodin.is            
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600  maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
 

Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur
Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur