Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
einbýlishús

Kolgerði 3

600 Akureyri

200.000.000 kr.

552.486 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2148360

Fasteignamat

127.000.000 kr.

Brunabótamat

190.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
362 m²
svg
8 herb.
svg
4 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Kolgerði 3
Glæsilegt og virðulegt 362,0 fm einbýlishús á frábærum stað í brekkunni. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð frá árinu 2020. Við Kolgerði standa einungis þrjú hús. Glæsilegt útsýni.


Eignin skiptist í; Forstofu, stofu, borðstofu og opið eldhús, 5 svefnherbergi, 4 baðherbergi, geymslu, sjónvarpsrými og stóran 50 fm. bílskúr. 

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskápum. 
Gott unglingaherbergi er næst forstofu
Stofa er opin og falleg  með góðum gluggum sem tengir svefnherbergin  og eldhús/stofurými  saman á smekklegan hátt. Góð rennihurð er út frá þessu rými út í hellulagðan og fallegan garð með heitum og köldum potti. Upptekin loft tryggja skemmtilega og mikla birtu inn í húsið. 
Svefnherbergisgangurinn samanstendur af tveimur rúmgóðum svefnherbergjum ( voru áður 3) með góðum skápum. 
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með stórum sturtuklefa og góðri innréttingu og innfelldri lýsingu. 
Gengið er upp hálfa hæð frá stofu/alrými þar sem komið er inn í opið og stórglæsilegt eldhús og borðstofu koma saman í opnu rými. 
Eldhúsið er með nýlegri, sérsmíðaðri innréttingu frá Tak innréttingum, marmara borðplötu á bekk og eyju sem setur mikinn svip á allt rýmið. Eldhúsið er búið vönduðum tækjum m.a. innfelldu sódavatns streymi við vaskinn. Frá eldhúsinu er glæsilegt útsýni til norðurs út fjörðinn. 
Borðstofan er í opnu framhaldi af eldhúsinu, þar er fallegur hlaðinn arinn og upptekinn loft sem er klædd sérstökum hljóðdúk sem tryggir mjög góða hljóðvist og öll lýsing er innfelld. 
Innst á hæðinni er hjónaherbergi með nýlegum og stórum fataskápum og vel búnu og nýlega uppgerðu baðherbergi með stóru sturtusvæði og fallegri innréttingu frá Tak innréttingum. Sannkölluð hjónasvíta.
Á neðstu hæð hússins er stórt og mjög rúmgott þvottahús með miklu skápaplássi. Þaðan er gengið niður í tómstundarsvæði og þaðan inn á stórt og rúmgott baðherbergi sem hæglega er hægt að breyta í SPA svæði. 
Aukaíbúð er á jarðhæð sem í dag er nýtt sem stórt og notalegt fjölskyldusjónvarpsherbergi.  Rúmgott og stórt herbergi með stórum gluggum og skápaplássi. Þar er einnig baðherbergi með sturtu og innréttingu. Sérinngangur er til staðar í þetta rými og væri auðvelt að loka því frá aðal íbúðinni ef vill. Á neðstu hæð hússins er einnig inngangur sem tengir húsið við bílskúr. Þaðan er hægt að ganga út í bakgarð hússins. 
Bílskúrinn flísar á gólfi. Góðir gluggar og mikil lofthæð. Innangengt er í bílskúr frá inngangi neðstu hæðar hússins. 
Góð aðkoma er að húsinu og bílaplan sem rúmar 5 bíla, hiti er í öllum plönum og stéttum umhverfis húsið. Búið er að setja hleðslustöð. 
Lóðin er einstaklega vel gróin, skjólsæl með góðum palli. Þar er lítið og fallegt hús sem setur skemmtilegan svip á garðinn. 
Húsið var nánast algjörlega endurnýjað 2020 - 2021 m.a. hitalagnir lagðar í gólf, eldhús endurnýjað og tvö baðherbergi endurnýjuð. 

Annað: 
- Allt tréverk var málað 2023 úti. 
- Frábær staðsetning þar sem ósnortin náttúran er handan við hornið.
- Heitur og kaldur pottur á verönd.

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi         s: 862-7919    / tryggvi@eignaver.is
Begga          s: 845-0671    /begga@eignaver.is
Arnar            s: 898-7011    / arnar@eignaver.is



 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. jan. 2020
83.950.000 kr.
82.000.000 kr.
362 m²
226.519 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone