Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingibjörg Þórðardóttir
Þórður S. Ólafsson
Ólafur Már Ólafsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
409,9 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu: 

Um er að ræða eitt fallegasta einbýlishús landsins, alls um 400 fermetrar á einni hæð. Húsið stendur á stórri á sjávarlóð (eignarlóð) á Arnarnesi. Inni í húsinu er rúmlega 200 fermetra garður, sem gerir húsið að einstakri perlu.
 
Eldhús er stórt og bjart, opið inn í borðstofu. Dagstofa snýr út að sjónum og þaðan er einstakt útsýni allt til Snæfellsjökuls. Svefnherbergi eru alls 6, baðherbergi 3. Þvottahús er rúmgott með góðu skápaplássi. Stór bílskúr. Sjónvarpsherbergi er rúmgott og hátt til lofts. Eikarparket á gólfum, en náttúruflísar á öllum votrýmum og við inngang. Pallar allt í kringum húsið. Heitur pottur með útsýni út á sjó. 

Forstofa: Íslenskt blágrýti á gólfum, stórir fataskápar.
Nyrðri svefngangur: Parketlagður. Baðherbergi með glugga, blágrýti á gólfi, flísalagt með mosaikflísum, sturtuklefi með glervegg og vönduð tæki.
Sjónvarpsstofa: Parketlögð og rúmgóð.
Tvö barnaherbergi: Bæði rúmgóð, parketlögð.
Hol: Í framhaldi af forstofu, parketlagt, stórir fataskápar. Fallegur arinn er í holi, sem er rúmgott og með útgengi í aflokaðan garð inni í miðju húsinu.
Gestasalerni: Blágrýti á gólfi, flísalagt með mosaik flísum og vönduðum tækjum.
Þvottaherbergi: Stórt, blágrýti á gólfi, með miklum innréttingum með vélum í vinnuhæð. Vaskur og vinnuborð. Úr þvottaherbergi er útgengi á blaklóð hússins.
Eldhús: Mjög stórt. Blágrýti á gólfum, fallegar og vandaðar innréttingar og tæki. Stór eyja í eldhúsi með granítplötu, góð borðaðstaða. Útgengt úr eldhúsi á stóran pall vestan við húsið þar sem njóta má kvöldsólar.
Borðstofa: Parketlögð með föstum skenk sem skilur að borðstofu og stofu.
Setustofa: Gengið niður tvö þrep úr holi / borðstofu, parketlögð og með mikilli lofthæð og stórum gólfsíðum gluggum sem vísa til sjávar.
Syðri svefngangur: Parketlagður og með miklum fataskápum. Þrjú barnaherbergi: öll parketlögð.
Hjónasvíta: Samanstendur af miðrými, stóru herbergi og baðherbergi. Hjónaherbergi: Parketlagt, miklir fataskápar. Baðherbergi: Blágrýti á gólfum og mosaik í sturtu. Útgengi þaðan inn í garðinn.
Bílskúr: Inngengt úr þvottaherbergi. 
Húsið að utan er í góðu ástandi, með koparþakkanti með harðviði undir og koparniðurföllum. 

Lóðin er 1505 fermetrar að stærð, ræktuð og fullfrágengin og stendur við opið svæði þaðan sem nýtur útsýnis til sjávar, m.a. til Snæfellsjökuls.

Skipulag hússins er vel heppnað. Eldhús er stórt og bjart, opið inn í borðstofu. Dagstofa snýr út að sjónum og þaðan er einstakt útsýni allt til Snæfellsjökuls. Svefnherbergi eru alls 6, baðherbergi 3. Þvottahús er rúmgott með góðu skápaplássi. Stór bílskúr. Sjónvarpsherbergi er rúmgott og hátt til lofts. Eikarparket á gólfum, en náttúruflísar á öllum votrýmum og við inngang. Pallar allt í kringum húsið. Heitur pottur með útsýni út á sjó. 

Um er að ræða eitt fallegasta einbýlishús landsins, alls um 400 fermetrar á einni hæð, upphaflega teiknað af Gunnari Hanssyni arkitekt, en síðari breytingar (2004) voru hannaðar af Úti og Inni arkitektum. Húsið stendur stórri á sjávarlóð (eignarlóð) á Arnarnesi og með óhindruðu útsýni til vesturs og norðurs. Inni í húsinu er rúmlega 200 fermetra garður, sem gerir húsið að einstakri perlu. Húsið er í göngufæri við alla helstu þjónustu, þ.m.t. skóla og verslanir.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu ingibjorg@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

 

Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. okt. 2014
128.650.000 kr.
102.000.000 kr.
390.3 m²
261.337 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone