Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson
Vista
svg

349

svg

303  Skoðendur

svg

Skráð  15. jún. 2024

lóð

Geirakot og Geirakot 1

356 Snæfellsbær

165.000.000 kr.

789.096 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2103320

Fasteignamat

561.000 kr.

Brunabótamat

116.840.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
209,1 m²
svg
0 herb.
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu jörðina Geirakot fasteignanúmer F2103320 og landeignanúmer L132772 og Geirakot 1 fasteignanúmer 2103323 í Snæfellsbæ.
Um er að ræða jörð á einstaklega fallegum útsýnisstað með land að sjó. Á jörðinni standa tvö íbúðarhús og er nýrra íbúðarhúsið (Geirakot 1) á einni hæð og mjög mikið endurnýjað og við það stór bílskúr. Húsið er kynt með öflugri varmadælu. Ljósleiðari komin inn og tengdur. Þriggjaja fasa rafmagn. Heimreið með bundnu slitlagi. Einungis 6 km eru til Ólafsvíkur þar sem er öll helsta verslun og þjónusta.

Skv. skráningu HMS eru eftirfarandi hús á jörðinni:
Íbúðarhús byggt 1970, talið vera um 200 m2.
Bílskúr byggður 1985, skráður 60,1 m2 en talin vera nærri 100 m2.
Sundlaug, byggð 1985, skráð 32 m2.
Íbúðarhús byggt 1963, mælist 36 m2.
Véla- og verkfærageymsla byggð 1966, mælist 95 m2.
Fjárhús byggð á árunum 1960 - 1977, mælast 252 m2
Hlaða byggð 1971, mælist 70 m2.
Hlaða byggð 1961, mælist 75 m2.
Nánari lýsing:
Nýrra íbúðarhúsið er steinsteypt á einni hæð og hefur verið endurnýjað verulega á undanförnum árum. M.a. hefur húsið verið einangrað og klætt með viðhaldsfríu undirkerfi og álklæðningu í bland við bandsagaða timburklæðningu, skipt um timbur í þaki og nýr þakdúkur settur á, skipt um alla glugga og útihurðir, allar lagnir endurnýjaðar í húsinu á árunum 2012-2018, eldhús og baðherbergi endurnýjuð og byggð rúmgóð 40 fm sólstofa með hita í gólfi og mætti nýta sem svefnherbergi. Húsið skiptist í forstofu, rúmgott eldhús, rúmgóða og bjarta stofu, sólstofu, bakinngangur og gengt þaðan inn í bílskúr, þvottahús, snyrtingu, svefnherbergisgang, baðherbergi, fjögur svefnherbergi. Frá þvottahúsinu er gengt út á rúmgóðan sólpall með skjólveggjum, þar sem er heitur rafmagnspottur.
Hiti er í öllum gólfum. Vatn í vatn varmadæla með innbyggðum heitavatnskút.
Bílskúrinn er rúmgóður, tvöfaldur, en óeinangraður. Bílskúrinn er með tveimur nýjum innkeyrsluhurðum, endurnýjuðum gluggum og endurnýjuðu þaki. Í bílskúrnum er sundlaug sem í dag er nýtt sem geymsla.
Eldra íbúðarhúsið hefur verið endurnýjað að þó nokkru leiti og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi og eitt svefnherbergi.
Véla- og verkfærageymslan er rúmgóð með tveimur nýlegum innkeyrsluhurðum og gönguhurð, óeinangruð.
Fjárhúsin eru með áburðarkjallara sem er vélgengur. Hluta fjárhúsanna hefur verið breytt í hesthús með steyptum stíum og steyptum fóðurgangi.
Jörðin er talin vera nærri 600 hektarar og þar af er ræktað land nærri 18,5 hektarar.
Virkjunarmöguleiki er í Stafabergsá sem er í 50% eigu Geirakots og 50% eign Brimilsvalla.
Gott aðgengi er að sjó.
Gott kalt vatn úr lind inni á landi jarðarinnar.
Jörðin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í meira en 100 ár.
Tilvísunarnúmer 10-2688
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang:  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig:  fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Úlfar Freyr Jóhannsson lögmaður og lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 692 6906 ulfar@fasteignamidstodin.is            
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600  maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur
Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur