Lýsing
NÁNARI LÝSING: Fyrir framan anddyri er skjólsamt opið rými og þaðan komið inn í anddyri með skápum. Úr anddyri er gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur neðri hæðarinnar. Barnaherbergin eru þrjú og er eitt þeirra frekar lítið og er nýtt sem þvottahús . Hjónaherbergi er rúmgott með útgengt á verönd í suður og þaðan í fallegan garð. Baðherbergið er með sturtu, góðri innréttingu og glugga. Innangengt er úr holi inn í rúmgóðan bílskúr með góðri lofthæð. Gengið er upp steinsteyptan stiga á efri hæð húsins. Eldhús er með fallegri innréttingu, þvottahús/geymsla inn af eldhúsi, borðkrókur og stórir gluggar með fallegu útsýni. Stofan er sérlega rúmgóð og björt með fallegu útsýni út á Kollafjörðin á Esjuna og Akrafjall. Gengið er úr stofu í stóran sólskála í suður. Gestasalerni er á efri hæðinni.
GÓLFEFNI: Ljóst parket er á flestum gólfum að undanskyldu anddyri og baðherbergjum en þar eru flísar, korkur á eldhúsi og teppi á sólskála.
VEL SKIPULÖGÐ EIGN MEÐ FALLEGU ÚTSÝNI OG SKJÓLSÖMUM SUÐUR GARÐI ÞAR SEM STUTT ER Í ÚTIVISTARPERLUR SELTJARNARNESS.
Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is