Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Árni Björn Erlingsson
Vista
einbýlishús

Brekkubraut 8

300 Akranes

92.900.000 kr.

582.080 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2101335

Fasteignamat

62.600.000 kr.

Brunabótamat

63.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1953
svg
159,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 15. ágúst 2024 kl. 17:30 til 18:15

Opið hús: Brekkubraut 8, 300 Akranes. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 15. ágúst 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:15.

Lýsing

*** BREKKUBRAUT 8 - 300 AKRANESI ***    
 
Fasteignaland og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Mjög svo fallegt og MIKIÐ ENDURNÝJAÐ 5 herbergja 159,6 fm einbýlishús, kjallari hæð og ris. Suðursólpallur með heitum pott. Afgirtur fallegur garður. Staðsett nálægt Brekkubæjarskóla, FVA og verslunum, og helstu þjónustu, staðsett miðsvæðis í hliðargötu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT


SJÁ MYNDBAND AF EIGN (VIDEO)

Steyptar útitröppur með hitalögn (snjóbræðslu)
Jarðhæð:
Gólfhiti er á allri jarðhæðinni. Parket á gólfi.
Forstofa með fataskápum og skóhillum, flísar á gólfi.
Innaf henni er stórt hol. Stigi upp í ris úr holi.
Herbergi notað sem sjónvarpsrými í dag. Rúmgott og 2 gluggar.
Eldhús var endurnýjað og fært inn í stofu 2022, Nýleg innrétting, Nýleg tæki. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Borðplata og bakveggur úr stuc deco steinefnaspartli.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og góð innrétting. Handklæðaofn. Dyr úr baðherbergi útá stóran suðursólpall með heitum potti.
Samliggjandi stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt, skrautlistar/rósettur/loftlisar á veggjum/lofti, gengið útá stóran suðursólpall. 

Ris:
parket á gólfi nema inná baðherbergi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott. Hljóðdempandi plötur á veggjum.
2 Svefnherbergi í viðbót á efri hæð. Gluggar í báðum. innfelldar hillur í öðru.
Baðherbergi/þvottahús: sameinað í eitt stórt rými 2023. flísar á gólfi. Veggplötur. Upphengt WC. Walk-in sturta. Baðkar. Inrétting og speglaskápur. Þvottainnrétting. Handklæðaofn.

Kjallari. 27,7 fm geymsla sem gengið er inn í utan frá. Geymsluhillur.

Á lóðinni eru 3 bílastæði og hleðslustöð.  Fallegur og vel hirtur garður, 2 geymsluskúrar á lóðinni. 

Endurnýjað:  Járn á þaki og þakkantur ca. 2009. Skipt um teppi og sett ljós í stiga 2022. Byggt í kringum stiga og smíðuð geymsla 2022. Skipt um neysluvatnslagnir 2022. Gólfhiti settur í forstofu og hol 2016, flotað jarðhæð og bætt við gólfhita á rest 2022. Eldhús fært inn í stofu og sett upp ný innrétting ásamt lögnum og tækjum 2022. Ofnar og ofnalagnir yfirfarnar og endurnýjað eftir þörfum á efri hæð. Skipt var um þrjá glugga 2016.  Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð. Dregið nýtt rafmagn á jarðhæð og efra baðherbergi og skipt út tenglum/rofum 2022. Stöð fyrir rafmagnsbil. Opnað burðarvegg milli borðstofu og stofu og settir burðabitar 2022. Útidyrahurð máluð og yfirfarin 2023. Málað þakkannt 2024. Baðherbergi á efri hæð allt tekið í gegn 2023/24. - flísar, ofnar, tæki, lagnir. 


Nánari upplýsingar veita:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s.787 3505/ oliver@fasteignaland.is

_____________________________________________________________________________________________________________________________________


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FASTEIGNALAND fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignasala er óheimilt að taka eign til sölumeðferðar ef hann eða aðrir þeir sem tilgreindir eru í 1. mgr. eru eigendur hennar eða hluta hennar nema fyrir liggi skýrar upplýsingar þar að lútandi í söluyfirliti eignar. Þá ber fasteignasala einnig að afla sérstakrar yfirlýsingar af hálfu kauptilboðsgjafa, áður en kauptilboð er gert, þess efnis að hann hafi verið upplýstur um eignatengsl fasteignasala eða annarra sem tilgreindir eru í 1. mgr. og að kauptilboðsgjafi geri ekki athugasemdir þar að lútandi. Fasteignasali ber sönnunarbyrði fyrir því að slík skrifleg yfirlýsing tilboðsgjafa hafi verið gefin áður en kauptilboð er gert í fasteign. Hafi fasteignasali milligöngu um kaup eða sölu á eign og hann eða starfsmenn hans búa yfir sérstökum upplýsingum um eignina eða eiganda hennar sem hafa þýðingu við söluna og kaupandi eða seljandi hafa ekki aðgang að, skal fasteignasali greina aðilum með sannanlegum hætti frá upplýsingunum. Ef fasteignasali má ekki vegna hagsmuna þriðja aðila veita framangreindar upplýsingar er honum óheimil milliganga um kaup eða sölu fasteignarinnar. Fasteignasali skal tilkynna aðilum tafarlaust með sannanlegum hætti hafi hann nokkurra annarra hagsmuna að gæta en þeirra er varða greiðslu þóknunar og útlagðs kostnaðar.]1) 1) L. 131/2015, 3. gr. 15. gr. Fasteignasali skal gæta hagsmuna kaupanda og seljanda.

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. apr. 2022
41.850.000 kr.
66.700.000 kr.
159.6 m²
417.920 kr.
13. apr. 2021
40.850.000 kr.
15.700.000 kr.
159.6 m²
98.371 kr.
19. sep. 2019
35.100.000 kr.
52.000.000 kr.
159.6 m²
325.815 kr.
16. nóv. 2012
19.100.000 kr.
25.800.000 kr.
159.6 m²
161.654 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.