Upplýsingar
Byggt 1960
180,2 m²
5 herb.
2 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Borg fasteignasala kynnir: Hæð, ris og vinnustofa/bílskúr/íbúð - rómantísk eign að Tunguvegi 12, 108 Reykjavík. Fimm svefnherbergi, stofa og borðstofa í opnu rými, gott fjölskylduhús. Sérstaklega góð staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, íþróttir og gönguleiðir tengdar Elliðaárdalnum.
Bókið skoðun: Gunnlaugur@fastborg.is
Tunguvegur 12 er tveggja íbúða hús í austurhluta 108 Reykjavík. Þar er öll þjónusta innan seilingar, leikskólar, grunnskólar, íþróttaaðstaða, gönguleiðir, matvöruverslanir og góð tenging við stofnbrautir.
Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar:
Matshluti 01 íbúð: 147,6 fermetrar (ómeðtalið undir súð) og matshluti 02 vinnustofa: 32,6 fermetrar (vinnustofan er fullbyggð og tilbúin, eignaskiptayfirlýsing liggur fyrir en er óþinglýst.) Heildarstærð eignar er: 180,2 fermetrar.
Íbúð í kjallara er í annarri eigu en efri hæðin á forkaupsrétt að kjallaraíbúð.
Nánari lýsing:
Á aðalhæð er anddyri, hol, eldhús, borðstofa og tvær stofur, önnur er notuð sem herbergi.
Borðstofa og stofa eru í rúmgóðu og opnu rými, þar er útgengt út á suðurverönd.
Stofan er björt með stórum gluggum til suðurs og vesturs. Innan stofu er önnur stofa/herbergi. Herbergið er rúmgott með glugga í vestur. Þar á milli er falleg tvískipt hurð með gleri og umhverfis eru bókahillur. Í rýminu eru fallegir loftlistar.
Náttúruflísar eru í anddyri, holi og eldhúsi. Í anddyri er fataskápur, rakarastóll og stigi upp á efrihæð og hurð sem vísar niður í geymslu og þvottahús. Eldhúsið er bjart með gluggum í norður og austur. Innrétting er ljósgrá og hvítar flísar á milli innréttinga.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, hol og baðherbergi. Holið er miðja hæðarinnar þar er stór gluggi til suðurs og fataskápar. Bjart og rúmgott herbergi snýr í austur, þar eru fataskápar og útgengt á nettar svalir. Hin þrjú herbergin eru ágætlega rúmgóð, þar eru fataskápar í mið-herberginu.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2010, það er flísalagt með svörtum og hvítum mosaik flísum af stærri gerðinni. Þar er baðkar, upphengt salerni, innrétting , handklæðaofn og þakgluggi. Sérlega fallegt baðherbergi.
Út frá stofu er verönd sem snýr á móti suðri. Garðurinn er sameiginlegur og vel gróin.
Byggingu vinnustofu/bílskúrs/herbergis, var lokið árið 2023. Þar er flísalagt baðherbergi og tengingar fyrir eldhúsi. Stór og fallegur gluggi vísar að innkeyrslu. Sjónsteypa er á ytra birgði og flatt þak með þakpappa og úthagagrasi á þaki.
Endurnýjun og viðgerðir eiganda:
2024 Nýtt gler og listar að utan í gluggum í holi í risi.
2025 nýir þakgluggar.
2025 nýjar þakrennur.
Vinnustofa/bílskúr byggð 2022.
Þak yfirfarið og skipt um þakjárn 2020.
Hús steinað 2007.
Stórar suðursvalir með geymslu; byggt árið 2021.
Innkeyrsla, hellulögn og tröppur endurnýjaðar.
Gólfefni eru að mestu parket og flísar í eldhúsi og votrýmum.
Eignin á forkaupsrétt á íbúð á jarðhæð.
108 Reykjavík er miðja höfuðborgarsvæðisins, þægilegar tengingar við stofnbrautir og göngu- og hjólaleiðir um allt.
Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, menntaskóla. Falleg fjölskyldueign á góðum stað.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.
s. 844 6447 – gunnlaugur@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af
heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.