Lýsing
Íbúðin skiptist í lokað anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 100,30 fermetrar, þar af er bílskúrinn 21,4 fermetrar.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi og fataskápur. Innangengt í bílskúr úr forstofu.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting, flísar milli efri og neðri skápa. Borðkrókur í eldhúsinu og gluggar. Tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Bjart og gott samliggjandi rými. Frá stofunni er útgengt í sólstofu og þaðan út á sólpall og út í garð. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með skápum. Það vantar mynd af hjónaherberginu.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Endurnýjað fyrir nokkrum árum. Flísar á gólfi og hluta veggja. Snyrtileg baðinnrétting með skúffum og skáp. Vegghengt klósett og walk-in sturta.
Þvottahús: Flísar á gólfi og skolvaskur.
Bílskúr: Uþb. 21,4 fermetra bílskúr. flísar á gólfi.
Geymsluris: Geymsluris er fyrir ofan bílskúr og hluta eignarinnar, mikið pláss sem hægt er að nota að hluta til sem geymslu. Innangengt úr bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður