Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Vista
fjölbýlishús

Laugavegur 96

101 Reykjavík

119.900.000 kr.

821.796 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2005512

Fasteignamat

88.900.000 kr.

Brunabótamat

68.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
145,9 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Afar glæsileg 2-3ja herbergja "penthouse" íbúð á tveimur hæðum í sögufrægu húsi við Laugarveginn þar sem áður var B-salur Stjörnubíós.  

** Mikil lofthæð í alrými
** 2 svefnherbergi 
** Góðar og skjólsælar suðursvalir
** Frábær staðsetning


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

Birt stærð skv. Þjóðskrá Íslands er 145,9m2 þar af milliloft 39,6m2. Hluti íbúðarinnar er undir súð og er því gólflöturinn stærri. 

Neðri hæðin skiptist í forstofu, snyrtingu, geymslu, eldhús, stofu og svalir.  Efri hæðin skiptist í tvö herbergi, fataherbergi (hægt að nota sem herbergi), baðherbergi og opið rými (innisvalir). 

Nánari lýsing:
Neðri hæð. 
Forstofa: Marmari á gólfi. Innaf forstofu eru góðir sérsmíðaðir skápar tengdir eldhúsinnréttingunni.
Gestasnyrting: Marmari í hólf og gólf og borðplötu úr íslensku blágrýti.
Eldhús: Er með vandaðri sérsmíðaðri innréttingu og Miele tækjum, granít borðplötu og innfelld lýsing er í lofti.   
Stofa: Er í alrými með eldhúsi. Mikil lofthæð upp í rúma 5,2 metra.  Útgengt er af mið palli út um tvöfalda hurð út á 20m2 skjólgóðar suðursvalir meðfram allri íbúðinni, með möguleika á að stækka svalir enn frekar.   
Á gólfum neðri hæðar, stiga, palli og gluggakistum er marmari og íslenskt blágrýti.

Efri hæð. 
Efri hæðin er í norðurhluta íbúðarinnar og er gengið upp á rúmgóðar innisvalir með sérsmíðuðu smíðajárnshandriði og sérsmíðuðum, innbyggðum bókahillum með rúmgóðum skúffum.
Herbergi: Hefur verið útbúið á innisvölum með opnanlegum glugga inni í alrými. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi. 
Fataherbergi: Er inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi: Sérsmíðaðar innréttingar, marmari á veggjum, granít á gólfi og borðplötu og sérsmíðaður granít sturtuklefi.  Tengt er fyrir þvottavél og þurrkara í baðherberginu. 
Á efri hæðinni eru opnanlegir stóri þakgluggar.  Gegnheilt hnotuparket er á efri hæð. 

Íbúðin var öll endurnýjuð á árunum 2002-2006 þ.e. gluggar og gler, rafmagn og pípulagnir, baðherbergi, eldhús, innréttingar og hurðir. Gólfhiti er í alrými á neðri hæð.  Hljóðdempun og hljóðeinangrun eru mjög góð í íbúðinni þar sem hún var áður bíósalur.  

Eignin er skráð 2ja herbergja skv. FMR en útbúið hefur verið annað herbergi á stigapalli á efri hæð með glugga sem opnast inn í alrými.

Laugarvegur 96, íbúð merkt 0301 er eign í sérflokki á besta stað í miðborg Reykjavíkur.
Sjón er sögu ríkari.


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. mar. 2022
65.500.000 kr.
89.900.000 kr.
145.9 m²
616.175 kr.
22. feb. 2022
65.500.000 kr.
90.000.000 kr.
145.9 m²
616.861 kr.
5. feb. 2018
60.050.000 kr.
255.000.000 kr.
578.5 m²
440.795 kr.
22. sep. 2016
44.400.000 kr.
66.700.000 kr.
145.9 m²
457.162 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík