Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Katla Hanna Steed
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1941
svg
320,2 m²
svg
11 herb.
svg
3 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði

Lýsing

Miklaborg kynnir: Einstaklega fallegt og vel viðhaldið einbýlishús í hjarta vesturbæjarins. Húsið er 320,2 m2 og er á tveimur hæðum auk þess sem aukaíbúð með sérinngangi er í kjallara en hún er með þremur svefnherbergjum. Húsinu fylgir sambyggður bílskúr ( 28 m2 ).

Húsið er byggt árið 1941 eftir hönnun Þóris G. Baldvinssonar en var stækkað árið 1961 eftir teikningu Kjartans Sveinssonar.


Pantið einkaskoðun: Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is

Aðalhæð: Komið er inn í uppgerða forstofu með fatahengi og fallegum viðarpanel. Gestasnyrting við forstofu er nýlega endurgerð. Eitt svefnherbergi er á hæðinni og er það innaf forstofu. Úr forstofu er gengið inn í opið hol með glæsilegum viðarstiga og upprunalegum hurðum. Haldið hefur verið í upprunalegan stíl hússins en ýmislegt fært til nútímalegra horfs svo sem með opnu eldhúsi, stofum og herbergjum sem flæða vel saman. Eldhús er opið og bjart og er vel hannað með sérsmíðaðri innréttingu frá Borg innréttingarsmiðju. Í eldhúsi er gott skápapláss og tenging við rúmgóða og bjarta borðstofu. Stofur eru þrjár talsins en fyrir utan borðstofu er setustofa og björt og stór stofa sem liggur 2. þrepum hærra. Gengið er úr stofunni út á svalir og þaðan út í gróinn og skjólsælan suðurgarð. Efri hæð: Hæðin hefur á allra síðustu árum verið mikið endurnýjuð. Skipt var um alla milliveggi í svefnherbergjum og útveggir einangraðir upp á nýtt. Nýjir ofnar eru í herbergjum og nýtt parket á gólfum herbergja. Nýtt teppi er á stiga og skipt var um allar hurðir og karma á efri hæð. Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi. 1. rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Gengið er út á skjólsælar og sólríkar nýlegar þaksvalir sem eru yfir öllum bílskúrnum. 2. Rúmgott svefnherbergi með góðum gluggum. 3. svefnherbergi sem er nokkuð minna en hin en er prýðilegt og getur vel nýst sem barnaherbergi eða vinnuherbergi. Baðherbergið er rúmgott og þar er gólfhiti og bæði baðkar og sturta. Góð innrétting, línskápar og gluggar. Gengið er niður á jarðhæð hússins frá forstofu aðalhæðar. Þar eru geymslur, þvottahús og aukaíbúð. Aukaíbúð: Sérinngangur er frá vesturhlið hússins en íbúðin hefur nýlega verið endurnýjuð. Íbúðin skiptist í 3. svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Baðherbergið er nýlega endurnýjað með nýjum flísum, nýrri innréttingu og nýjum blöndunartækjum. Ný eldhúsinnrétting er líka í íbúðinni og ný gólfefni. Skipt var nýlega um alla ofna í íbúðinni. Íbúðin býður upp á útleigu og góðar leigutekjur en einnig að vera samnýtt með aðalíbúð hússins. Húsið hefur fengið töluvert viðhald og endurnýjun á síðustu árum. m.a. þök á aðalbyggingu og viðbyggingu. Öll gólf á aðalhæð hússins hafa verið lögð gegnheilu eikarparketi en flísalagt í forstofu og gestasnyrtingu. Steinsteyptar viðbyggingar voru teiknaðar af Kjartani Sveinssyni árið 1961. Annars vegar er um að ræða ca. 30 m2 viðbyggingu við stofu í suð-vesturenda hússins ásamt jarðhæð ( gangur með 2 herbergjum ), hins vegar forstofuinngangur ( aðalinngangur ) ásamt gestasnyrtingu. Auk þess voru gluggar í borðstofu og stofu í upprunalegu byggingunni stækkaðir í kringum 1961. Nýr sólpallur er í garðinum til hliðar við eldri pall. Skipt hefur verið nýlega um allar rúður í viðbyggingu í stofu og all flestar rúður á jarðhæð hússins. Bílskúr er óupphitaður og þar hafa ofnar ekki verið settir upp en hitarör hefur verið sett út í bílskúr. Planið fyrir framan bílskúr, tröppur upp aðalinngang og planið fyrir framan ruslatunnur var nýlega steypt og hiti settur þar í. Húsið hefur nýlega verið málað að utan. Mjög falleg eign og mikið endurnýjuð á vandaðan hátt. Pantið einkaskoðun: Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali, sími 8970634.

img
Þröstur Þórhallsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
img

Þröstur Þórhallsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. apr. 2022
122.150.000 kr.
148.500.000 kr.
320.2 m²
463.773 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík

Þröstur Þórhallsson

Lágmúli 4, 108 Reykjavík