Opið hús: Kríuás 13, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 14. október 2024 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.
Lýsing
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofan er nokkuð rúmgóð með parketi á gólfi og þaðan er útgengt út á afgirta verönd sem snýr í suðvestur / vestur.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og plexigleri milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö með parketi á gólfi og góðir fataskápar eru í stærra herberginu.
Baðherbergið er flísalagt með hvítri innréttingu og baðkari. Opnanlegur gluggi á baði.
Þvottahús er innan íbúðar með flísalagt gólf og inn af því er sérgeymsla íbúðarinnar.
Í sameign er sameiginleg hjólageymsla. Búið er að tengja fyrir hleðslustöð fyrir allar íbúðir í húsinu. Gólfefni eru harðparket og flísar.
Lóð og umhverfi hússins allt hið snyrtilegasta. Hiti er í stétt.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
----------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat