Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson
Upplýsingar
svg
499832,9 m²
svg
0 herb.
svg
Aukaíbúð

Lýsing

Fasteignamiðstöðin kynnir eignina Strandarhöfuð , 861 Hvolsvöllur,  fasteignanúmer 219-3320 og landeignanúmer L163971 ásamt húsakosti  og, tilheyrandi eignarland.
Um er að ræða lögbýlið Strandarhöfuð með miklum húsakosti staðsett örstutt frá Hvolsvelli í Rangárþingi eystra. Landið sem er 240 hektarar er skilgreint samkvæmt aðalskipulagi sem landbúnaðarland og er afmarkað með girðingum og skurðum. Jörðin er mjög grasgefin og landgæði jarðarinnar afar góð. Ræktað land er um 30 hektarar (tún) en gæti verið umtalsvert meira. Afar fallegt útsýni m.a. til fjalla (suðurlands undirlendið) Auðvelt er að skipta jörðinni í tvennt og gera tvær jarðir úr landinu.  Eign fyrir fjársterka aðila. 
Jörðin er vel staðsett, í ca. 5 mínútna akstursfjarlægð frá þéttbýliskjarna (Hvolsvöllur) þar sem nálgast má flesta almenna þjónustu.
Húsakostur er kyntur með rafmagni og varmadælum. Neysluvatn er fengið frá samveitu.
Þetta er stórglæsileg jörð sem gefur mikla möguleika til landbúnaðar eða ferðaþjónustu.
Íbúðarhús: Glæsilegt og reisulegt 271 m2 tveggja hæða timburhús á steyptum sökkli, byggt 2006. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, 5 svefnherbergi, tvö baðherbergi, opið sjónvarpsrými, sturtuherbergi, þvottahús, búr og tvöfaldan bílskúr.
Nánari lýsing
Neðri hæð:
Komið er að húsi inn á stórt steypt bílaplan. Gengið er inn um aðalinngang inn í anddyri með fataskápum. Inn af anddyri er komið inn í rúmgott alrými með stiga upp á efri hæð. Úr alrýminu er opið inn í stofu og bjart eldhús með eyju, eldavél með tvöföldum ofni og gashelluborði. Borðstofa er rúmgóð með útsýni til suðurs og vesturs, stofa er í framhaldi af borðstofu. Stofan er rúmgóð með frönskum hurðum sem opnast út á sólpall. Þar er nýlegur saltvatnspottur frá Heitir Pottar. Á neðri hæð er eitt stórt svefnherbergi með fallegu útsýni til fjalla, gestasnyrting og sturtuherbergi ásamt rúmgóðu þvottahúsi með útgengi á sólpall. Inn af þvottahúsi er stór geymsla/búr sem opnast inn bílskúr. Á gólfum á neðri hæð eru flísar með undirliggjandi gólfhita og í svefnherberginu er eikarparket.
Efri hæð:
Þegar er komið upp á efri hæð blasir við sjónvarpsherbergi með verulega aukinni lofthæð og stórum suðurvísandi  glugga með stórkostlegu útsýni til fjalla og Vestmannaeyja. Úr sjónvarpsherbergi er útgangur út á suðursvalir. Á efri hæð eru fjögur rúmgóð svefnherbergi og nýuppgert og flísalagt baðherbergi með baðkari og góðum línskáp. Gólf á efri hæð eru með eikarparketi.
Timburpallur er í kringum húsið að hálfu leyti, annars er mynstursteypa á bílaplani og vestan við húsið.
Húsið stendur á hóli og inn í hann hefur verið grafið fyrir jarðhýsi með vín- og grænmetisgeymslu.
Hesthús: 427,4 m2 hesthúsið er með 36 stíur þar af ellefu, tveggja hesta stíur.  Í hesthúsinu er einangruð hnakkageymsla, kaffistofa og köld geymsla/spóngeymsla.Í hesthúsinu eru tvær varmadælur.
Reiðhöll: Úr hesthúsinu er innangengt inn í 16 x 30m reiðhöll. (480 m2). Um er að ræða stálgrindarhús byggt 2017 sem er klætt er með yleiningum. Gengið er inn í reiðhöll í gegnum tengibyggingu. Í tengibyggingu er salerni/þvottarými, baðaðstaða fyrir hesta og tvær rúmgóðar stíur.
Önnur útihús: Eldri hlaða, innangeng úr hesthúsi, hefur verið notuð sem fjárhús en væri auðveldlega hægt að breyta í hesthús eða geymslu.
Inn af hlöðu er 120 m2 skemma með 6 m2 frysti og önnur 140,5 m2 vélaskemma.
Gestahús: Húsið er staðsett steinsnar frá íbúðarhúsi. Um er að ræða timburhús, byggt 1970. Húsið er 58,5  m2 með 3 svefnherbergjum, eldhúsi, borðstofu, stofu í opnu rými, baðherbergi með sturtu, anddyri m/ þvottahúss aðstöðu og timburpalli.
Önnur hús er gamalt fjárhús sem nýtist sem vetrarskjól fyrir folaldsmerar á veturna.
Á jörðinni Strandarhöfuð er í dag rekið þekkt hrossaræktarbú. Mjög áhugaverð jörð á besta stað á Suðurlandinu. 

Strandarhöfuð legal estate and farm, located in Rangárþing Eystra, south Iceland a roughly hour drive from Reykjavík. 

The location is peaceful yet within easy access of amenities and local businesses with Hvolsvöllur town being a 5 minute drive away. 
The 240 hectar land is beautifully located with great mountain and glacial views to the east and magnificent views of the Westman Islands. There are a few housing options, a large 271 sqm. residential home as well as 900 sqm. stables/riding hall. There is also a three bedroom cabin/staff housing (59 sqm) and multiple outhouses.
Great land for farming, good riding trails. This estate sits on a unique location fitting both equestrians in search of high class training facilities or even tourism entrepreneurs looking for opportunities along the highly popular South Coast.

Housing: Beautiful 271 sqm residential home with breathtaking view and big terrace. The two story house has five spacious bedrooms and 2,5 bathrooms. Along with a spacious garage, pantry and large laundry room. 
The first floor is divided into a living room, dining room and an open plan kitchen. Also on the first floor is a bathroom and a large bedroom. On the second floor is a large family room with high ceilings and a balcony overlooking the terrace, a spacious bathroom (totally renovated 2022) and four more bedrooms, each with great view. 
The main stable includes a total of 36 stalls (thereof 11 double stalls), a changing room, staff room with kitchen amenities, restroom and horse bathing facilities. With a 16x30m insulated riding hall with mirrored walls, equine training opportunities are great, even in colder winter months. Outside, you will find an additional riding arena accompanied by outbuildings and storage house and a smaller indoor riding arena which can be developed into further riding stalls or even staff accommodations/storage.
Price upon request.

For further information contact magnus@fasteignamidstodin.is and gudrun@fasteignamidstodin.is

Tilvísunarnúmer 10-2746

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000 / 892 6000
tölvupóstfang:  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig:  fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000  tölvupóstur gudrun@fasteignamidstodin.is
Úlfar Freyr Jóhannsson lögmaður og lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 692 6906 ulfar@fasteignamidstodin.is            
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600  maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur
Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur