Upplýsingar
Byggt 2023
72,5 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Dalsmúli 1-3 íbúð 505 er 2 herbergja, 72.5 fm íbúð.NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Lilja Guðmundsdóttir, Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868, lilja@eignamidlun.is
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar eignir við Dalsmúla 1-3 í glæsilegu lyftuhúsi á Orkureitnum, sannkölluðum sælureit við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.
Heimasíða verkefnisins:
**Sækja söluyfirlit**
Orkureitur A íbúð 505 , íbúð 05-05 er 72.5 fm 2 herb.íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn.
Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 72.5 fm, með geymslu í sameign. Innréttingaþema í íbúðinni er: Rut 2
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að afhending fyrstu íbúða í Dalsmúla 1-3 verði haustið 2024
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Áformað er að afhenda fyrstu íbúðir haustið 2024 og að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“.
Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.
Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar.
Þórarinn M. Friðgeirsson lögg fs sími 899-1882, thorarinn@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson lögg fs sími 839-1600, gunnarbergmann@eignamidlun.is
Ólafur H Guðgeirsson lögg fs sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson lögg fs sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Oddný María Kristinsdóttir lögg fs sími 777-3711, oddny@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir lögg fs sími 649-3868, lilja@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson lögg fs sími 864-5464, gudlaugur@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook