Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Baldur Jezorski
Díana Arnfjörð
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Vista
einbýlishús

Fálkastígur 8

225 Garðabær

136.400.000 kr.

711.900 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2283713

Fasteignamat

115.650.000 kr.

Brunabótamat

89.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
191,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Vorum að fá í sölu fjölskylduvænt einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og rúmgóðum bílskúr á einstökum stað innst í botnlanga með óskertu útsýni er til suðurs og vestur en einnig sést til  Reykjavíkur, Bessastaða, Snæfellsjökuls og víðar.
Húsið er samtals 191,6 fm að stærð og skiptist þannig að íbúðarrými er 149,1 fm og bílskúr 42,5 fm. Húsið stendur á eignarlóð. 
Mjög stór timburverönd, ca 100 fm, er sunnan og vestanmegin við húsið með fallegu útsýni


Skipting eignar: Anddyri, gestasnyrting, stofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, hol, þvottahús, geymsla, bílskúr og stór pallur. 

Nánari lýsing eignar.
Forstofa er rúmgóð með góðum fataskáp. frá anddyri er gengið inn í svefnherbergi og gestabaðherbergi. Flísar á gólfi. 
Gestasnyrting: Flísalögð, upphengt salerni og sturtuklefi. 
Stofa: Mjög björt og stór stofa og borðstofa með útgengt á stóran timburpall með skjólgirðingu. Stofan er opin inn að eldhúsi. 
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri ljósri viðarinnréttingu með góðu skápaplássi og opið inn að borðstofu. tengi er fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. 
Gangur/hol: Rúmgóður gangur. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. hjónaherbergið er 13,6 fm samkvæmt teikningu.
Þrjú Barnaherbergi:  Barnaherbergin eru þrjú, þar af er eitt forstofuherbergi, tvö af þeim eru með fataskáp. Samkvæmt teikningu eru þau 9,8 fm , 8,4 fm og 9 fm að stærð. 
Þvottahús: Þvottahús er inn af gangi. Rýmið er mjög rúmgott og með innréttingu, vask og góðu borðplássi. Innangengt er í geymsu og bílskúr frá þvottahúsi. Einnig er útgegnt frá þvottahúsi í garð þar sem eru snúrur. 
Geymsla: Er inn af bílskúr, 10,3 fm samkvæmt teikningu.
Bílskúr: innangengt er í bílskúrinn sem er skráður skv teikningu 37,4 fm, Epoxy málning á gólfi,  góð lofthæð, inngönguhurð, gluggar og rafmagnshurðaopnari á bílskúrshurð fylgir með en er óuppsettur.

Verönd: Húsið stendur á einstökum stað í nánd við náttúruna. Mjög stór timburverönd, 100 fm, er sunnan og vestanmegin við húsið með fallegu útsýni. Einnig er stór kaldur geymsluskúr á pallinum sem nýtist mjög vel. Bílastæðið er hellulagt og með hitalögn, mjög góð aðkoma er að eigninni. Einnig er hellulagt  meðfram austurhlið eignarinnar. Einnig er stór snyrtilegur grasflötur sem nær í kringum húsið á þessari 921 fm lóð. 

Upplýsingar frá seljanda:
Eignin er SG einingarhús og er mjög viðhaldslítið. 

2015 Bílskúrsgólf var málað með Epoxy málningu. 
2016 Settur upp tölvutengiskápur í bílskúrsgeymslu og tölvulagnir tengdar
2017 Allt tréverk málað (gluggar og hurðar) sem og pallur og síðan eftir þörfum eftir það.  
2017 Bílaplanið stækkað úr ca 75 fm í ca 275 fm. Bílaplanið var hellulagt af verktaka; Allt fyrir garðinn. Verktakar hér á Álftanesi sem vinna iðulega fyrir okkur ef við þurfum að fá einhvers konar garðvinnu. Ath snjóbræðsla er undir bílaplani frá anddyri og meðfram bílskúrnum, ekki annars staðar. 
2018 Pallinum breytt og smíðaður geymsluskúr, ca15 fm. Skúrinn er óeinangraður en klæddur með vatnsheldum krossvið. í geymsluskúrnum eru raftenglar og lýsing. 
2019 Settur upp nýr matjurtakassi og bætti við skjólvegg við hann. 
2020 Yfirfarin útiljós og settir upp útitenglar
2021 Bætt við grillhúsi og skjólvegg á palli. Pallurinn er rúmlega 100 fm.  
2023 Sett nýtt parket á allt nema forstofuherbergi, baðherbergin eru flísalögð og þvottahúsið er dúklagt. 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

img
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Garður
Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
img

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. sep. 2014
44.050.000 kr.
45.000.000 kr.
191.6 m²
234.864 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður