Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Háaleitisbraut 151

108 Reykjavík

69.400.000 kr.

654.717 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2015445

Fasteignamat

63.650.000 kr.

Brunabótamat

47.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1965
svg
106 m²
svg
4 herb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir Háaleitisbraut 151, rúmgóða og bjarta fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð. Íbúðin er 106 m2 samkvæmt Þjóðskrá Íslands og er geymsla 4,7 m2 þar af. Húsið hefur nýlega verið klætt að utan, svalir endurnýjaðar og gluggar lagaðir. Ný svalahurð er út á rúmgóðar svalirnar. 
Staðsetningin er frábær og stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla og íþróttasvæði Víkings er í göngufæri í Safamýri.


Nánari lýsing eignar:
Komið er inn í hol og anddyri með parket á gólfi
Eldhúsið er með snyrtilegri hvítri innréttingu og dúk á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar og með parket á gólfi. 
Inn af stofu er herbergi með parketi á gólfi.
Útgengt er út á rúmgóðar suður svalir úr stofunni.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi
Herbergi II er með parketi á gólfi og góðum skápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu.
Geymsla er í sameign og er hún 4,7 m2.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla 
Næg bílastæði eru við húsið og er húsfélagið að fara í að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Til stendur að skipta út anddyri og póstkössum og setja upp nýja dyrasíma með myndavél og verður það greitt úr hússjóði. 

Hér er rúmgóð eign á ferðinni í hinu vinsæla Háaleitishverfi, í húsi sem hefur verið mikið endurnýjað og haldið vel við. Sjón er sögu ríkari bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni lgfs í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík