Opið hús: Grensásvegur 1B - 0106, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 01 06. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. nóvember 2024 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.
Lýsing
Við á Heimili fasteignasölu erum staðsett í næsta húsi (Grensásvegur 3) við þessa glæsilegu byggingu. Hafið samband og við göngum með ykkur yfir götuna og sýnum samdægurs.
Nánari lýsing
Um er að ræða stórglæsilega 85,8 fm 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með 24,2 fm aflokaða sér verönd út frá stofunni. Íbúðin er með um 4 metra lofthæð sem gerir hana sérlega bjarta og fallega. Komið er inn í rúmgóða forstofu og þaðan gengið inn í stórt bjart opið rými sem er anddyri, eldhús, stofa og borðstofa. Skápur er við forstofuna. Rúmgott bjart eldhús með eyju og stofa með útgengi á stóra verönd. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. Innaf eldhúsi er rúmgott þvottahús/búr. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, merkt 0024.
Frekari upplýsingar veita:
Sigríður Lind Eyglóardóttir, sigridur.lind@heimili.is, 899-4703
Anna Sigurðardóttir, as@heimili.is, 898-2017
Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@heimili.is, 895-1098
Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is, 617-5161
Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.
Stutt lýsing Grensásvegs 1B.
Húsið er 41 íbúða vandað fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd, aukinni lofthæð og hurðum í yfirstæð og með stórum gólfsíðum björtum gluggum. Þær eru afhentar fullbúnar með parketi, nema votrými sem eru flísalögð. Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Iwa.
Allt parket á gólfum er vandað harðparket.
Innfelld LED lýsing í loftum.
Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf frá Eico.
Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe.
Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts.
Gólfhiti er í öllum íbúðum
Bílakjallari/bílastæði.
Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt. Í fullbúnum bílakjallara verða hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Deilibílar.
Deilibílar verða hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og atvinnustarfsemi á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur verða forskráðir.
Myndir eru 3D af íbúð með samskonar tækjum og innréttingum. Endanleg skil íbúða miðast við skilalýsingu eignarinnar, en þar eru nákvæmar upplýsingar um eignina.
Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimili fasteignasölu, Grensásvegi 3, 530-6500 eða á heimili@heimili.is Heimasíðu verkefnisins má finna hér.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.