Lýsing
Um er að ræða þriggja herbergja vel skipulagða íbúð á 5 hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin er með tvær svalir, stórar svalir út frá stofu sem snúa í suðvestur og svalir út frá hjónaherbergi sem snúa í suðaustur. Íbúðin býður uppá frábært útsýni, er á vinsælum stað í Reykjavík þar sem stutt er í alla almenna þjónustu, Laugardalinn o.fl.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá 88,3 fm.
Nánari lýsing:
Gólfefni: Íbúðin er öll parketlögð, fyrir utan flísalagt baðherbergi.
Anddyri: Komið inn í hol/anddyri með innbyggðum fataskáp á ganginum.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með gólfsíðum gluggum, útgengt út á stórar suðvestur svalir.
Eldhús: Uppgert eldhús með borðkrók. Hvítir efri og neðri skápar og hillur, rammað inn með ljósum viði.
Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum fataskáp. Útgengt út á svalir í suðaustur. Mikið útsýni.
Herbergi: Með innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi: Gólf og sturta flísalögð veggir að hluta. Vaska innrétting með neðri skáp, upphengt klósett. Opnanlegur gluggi.
Geymslur: Tvær geymslur fylgja eigninni. Önnur 3,1 fm á jarðhæð og hin 2,2 fm á 5. hæð.
Annað: Sameign er mjög snyrtileg með tveimur nýlega endurnýjuðum lyfum og myndavéla dyrasímakerfi. Á efstu hæð eru aðskilin rými fyrir þvottahús og þurkkherbergi. Húsfélagið er eigandi íbúðar 0101 (húsvarðaríbúð) en leigutaki þar er í hlutastarfi við húsumsjón og eftirlit. Hjóla- og vagnageymsla á neðstu hæð. Þá er búið að setja upp hleðslusöðvar á bílaplanið fyrir rafbíla. Lokið er við úrbætur skv. ástandsskýrslu Verksýnar, skipt um alla glugga og svalahurðir á vestur, norður og austur hliðum, þak lagað, múrskemmdir og allt húsið málað. Skólplagnir endurnýjaðar árið 2022.
Allar nánari upplýsingar veitir Halldór Frímannsson, löggiltur fasteignasali, í síma 660-5312 eða á netfanginu halldor@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.