Upplýsingar
Byggt 1972
399,7 m²
8 herb.
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: EINSTAKT HÚS – LAUST TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Húsið er teiknað að innan sem utan af Knúti Jeppesen arkitekt og staðsett i grónu hverfi á efri brekkunni. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, 3 baðherbergi, sérhannað eldhús, stofur, vinnustofur og bílskúr. Nánari upplýsingar veit Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs, í síma 837.8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing
Klettagerði 6 er tvílyft steinsteypt einbýlishús, með hallandi þökum og rammgerðu burðarvirki í kjallara staðsett á 928 fm lóð í friðsælli og gróinni götu. Húsið er skráð 399,7 fm og skiptist í 308 fm íbúðahluta, 70,8 fm kjallara og 20,9 fm bílskúr auk óskráðs 26,4 fm bíósals í garðinum. Húsið skiptist í mismunandi rými sem hvert hefur sitt hlutverk. Ómálaður strigi er á veggjum í húsinu. Lágmynd er mótuð á vegginn milli húsanna (íbúð og vinnustofu) eftir Örn Inga listamann.
Aðalinngangar: Tveir inngangar eru í húsið á jarðhæð. Fatahengi í báðum og gestasalerni við annan innganginn.
Dagrými: Skiptist í stofur, eldhús og þvottahús ofl.
Stofur eru mjög rúmgóðar með flísum á gólfi. Arinn klæddur íslenskum skeljasandi og loftgluggi. Burðarveggur er mynsturmálaður af Erni Inga listamanni og Herði Jörundssyni. Tréstigi er upp á pall fyrir ofan stofuna. Parket á gólfi.
Pallurinn/risið er með hallandi þaki m/útgengi á flatt þak. Útsýni til allra átta.
Eldhús: Innréttingar úr beyki með mjög miklu skápaplássi og eru skápar yfir heilan vegg. Borðkrókur með útsýni til austurs og suðurs. Korkur á gólfi. Útgengt út í garð.
Þvottahús/hannyrðaherbergi: Beykiskápur nær frá búri út að forstofu þar sem síðasta einingin er fataskápur fyrir yfirhafnir.
Svefnherbergisrými: Í miðju rýminu er lítil vatnstjörn með hringlaga þakglugga og í kringum hana eru svefnherbergin fjögur og baðherbergið. Í öllum herbergjunum eru fataskápar auk þess sem innbyggðar innréttingar eru í barnaherbergjum. Parket á gólfum.
Baðherbergi: Postulínshúðað pott-baðkar, vaskur og sturtubotn. Salerni endurnýjað. Flísar á gólfi.
Kjallari: Stigahol er á jarðhæð niður í kjallara en einnig er þar sérinngangur. Kjallari er 95,7 fm opið rými með þremur burðarsúlum og röð glugga á tveimur veggjum. Þar er snyrting með salerni, vaski og sturtu. Vinnubekkur með vaski er á einum vegg kjallarans, auðvelt er að innrétta þar eldhús. Innangengt er frá aðalíbúð en auðvelt að loka af. Parket á gólfi.
Björt listamannsvinnustofa á tveimur hæðum er inn af bílskúr á jarðhæð og kjallara. Innangengt er á milli en einnig sérinngangur. Stór gluggi er til suðurs og loftgluggi. Hljóðeinangrað herbergi en einnig er þar eldunaraðstaða og lítið salerni m/vaski. Steypt gólf.Útgengt út í garð.
Garður: Í garðinum er niðurgrafinn 26,4 m2 bíó- og sýningarsalur. Gluggarönd er í lofthæð til suðurs. Ekki hluti af skráðum fermetrum.
Viðhald: Húsið hefur verið talsvert endurnýjað á undanförnum árum:
Hiti var settur í bílastæði og aðkomur að vestan og austan.
Þakið á húsinu hefur verið endurnýjað að hluta á undanförnum árum.
Gler í húsinu hefur að hluta til verið endurnýjað á síðustu sex árum.
Viðarvörn hefur verið borin á topp hússins, innganga og á endurnýjaða glugga.
Einstakt hús í góðu ástandi með ómælda nýtingarmöguleika þaðan sem stutt er í alla þjónustu, svo sem matvöruverslanir, íþróttaiðkun, Háskólann á Akureyri o.fl. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir lgfs. í síma 837.8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.