Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
svg

2068

svg

1526  Skoðendur

svg

Skráð  13. jan. 2025

einbýlishús

Hamarstígur 22

600 Akureyri

108.900.000 kr.

450.932 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2147070

Fasteignamat

97.700.000 kr.

Brunabótamat

116.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1955
svg
241,5 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignaver 460-6060

Hamarstígur 22 Akureyri.

Þó nokkuð endurnýjað og falleg einbýlishús með innbyggðum bílskúr á góðum stað miðsvæðis á Akureyri. Húseignin er á þremur hæðum, samtals 241,5 fm. 
Hönnuður hússins: Sigvaldi Thordarson arkitekt. 


Nánari lýsing:

Aðalinngangur er að sunnanverðu, gengið er upp tröppur að að inngangi:
Forstofa, flísar á gólfi og góður fataskápur þar. 
Snyrting er við forstofu, flísar á gólfi og gluggi með opnanlegu fagi. 
Í eldhúsi er vönduð og falleg innrétting frá TAK, borðplata frá Granítsteinum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Bakarofn í vinnuhæð ásamt combi ofni.  Tækjaskápur í eldhúsi. Gott pláss fyrir borðstofu/eldhúsborð. 
Hol, rúmgott og bjart  hol er undir stiga, parket á gólfi.
Stofan, gengið er upp tvær tröppur frá holi í rúmgóða stofu, parket á gólfi og útgengt er út á svalir við hlið stofu. Aukin lofthæð í stofu. 
Frá holi er gengið upp nýlegan og fallegan stálstiga upp á efstu hæð hússins, þar eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Svefnherbergin: 1) Parket á gólfi, fataskápur. 2) Parket á gólfi og útgangur út á svalir 3) Parket á gólfi. 
Baðherbergið er með flísum á gólfi og á veggjum að hluta. Innrétting, baðkar með sturtutækjum og gluggi með opnanlegu fagi. 
Úr eldhúsi er gengið niður stiga á l.hæð hússins:
Leiguíbúð/aukaíbúð er á l.hæð, sérinngangur að austanverðu.  Flísar á forstofu, baðherbergið með flísum á gólfi og sturtuklefa, ágæt innrétting í eldhúsi, dúkur á gólfi og rúmgott svefnherbergi, parket á gólfi þar. 
Þvottahús, lakkað gólf.
Geymslur, tvær geymslur, lakkað gólf. 
Bílskúrinn er í dag tvískiptur. Búið að útbúa gott svefnherbergi úr hluta bílskúrs og hinn hlutinn nýtist í dag sem geymsla, auðvelt að taka niður vegg og fullnýta bílskúrinn sem slíkan. 
Inngönguhurð er í bílskúr frá suðurhlið hússins.

Annað:
- Þak endurnýjað árið 2020 af Sigurgeiri Svavarssyni.
- Eldhús var endurnýjað árið 2019 sem og fataskápur í forstofu. Sérsmíði frá TAK innréttingum. 
- Skipt var um rafmagnstöflu og dregið nýtt í hluta hússins árið 2019 ( önnur og þriðja hæð ) 
- Nýtt harðparket sett á aðra og þriðju hæð árið 2019.
- Sér sérsmíðaður vandaður og fallegur stálstigi settur milli hæða árið 2019 frá stálsmiðju Óðins. 
- Hiti í plani og stétt.
- Stórt bílastæði ( rúmar 3- 4 bíla ).
- Úleigumöguleikar. Auðvelt að leigja út íbúð á l.hæð. Sérinngangur að austanverðu. 

Nánari upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum :
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is


 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. jún. 2017
38.900.000 kr.
54.500.000 kr.
241.5 m²
225.673 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone