Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
svg

1376

svg

1109  Skoðendur

svg

Skráð  17. jan. 2025

raðhús

Holtsbúð 21

210 Garðabær

137.000.000 kr.

823.812 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2070518

Fasteignamat

103.500.000 kr.

Brunabótamat

77.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1977
svg
166,3 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 21. janúar 2025 kl. 17:00 til 18:00

Opið hús: Holtsbúð 21, 210 Garðabær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 21. janúar 2025 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.

Lýsing

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg.fasteignasali kynna fallegt og vel hannað 166,3fm, 5 herbergja raðhús með bílskúr á 2 hæðum að Holtsbúð 21, 210 Garðabær. Eignin er teiknuð af arkitektinum Páli Ólasyni og er afar vel skipulögð með 4svefnherbergjum, tveimur á jarðhæð og tveimur á efri hæð. Fallegt stofu og eldhúsrými með mikilli aukinni lofthæð, innbyggðri lýsingu og fallegri gluggasetningu. Útgengt er út á suður svalir með stiga niður í fallegan og gróinn suður garð sem er með viðarverönd að hluta og tyrfður að hluta. Baðherbergi er á báðum hæðum en þvotthús er á neðri hæðinni. Bílskúr er innbyggður með rafmagni, heitu og köldu vatni. Sér bílastæði á bílaplani fyrir framan bílskúr. Eignin er afar vel staðstett innst í friðsælum botnlanga í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabænum. Fjölbreytt verslun og nærþjónusta í göngufæri ásamt leik-, grunn- og framhaldsskóla. Þá er fjölbreytt og rómað íþróttastarf Stjörnunar í Hekluhöllinni og Miðgarði einnig í nokkra mínútna göngu- eða hjólafæri.  

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is


Eignin Holtsbúð 21 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-0518, birt stærð 166.3 fm, þar af er bílskúr 18,3fm.

Nánari lýsing:
Neðri hæð: Anddyri - Þvottahús - Baðherbergi - 2 svefnherbergi:
Anddyri:
Flísar á gólfi. Innbyggður skápur.
Gangur: Tengir saman öll rými neðri hæðar. Stigi upp á efri hæð.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting með skápum, góðu bekkjarplássi og vask. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Útdraganleg þvottagrind.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi með sturtuhengi, upphengt salerni og skúffuinnrétting með vask, spegli fyrir ofan ásamt kastaralýsingu fyrir ofan spegil.
Svefnherbergi I: Rúmgott með opnum skáp með hillum og fatahengi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með parketi á gólfi.

Efri hæð: Stofa - Eldhús - Sjónvarpskrókur - 2 Svefnherbergi:
Stofa: 
Rúmgóð opin og björt með mikilli lofthæð og innbyggðri lýsingu. Útgengt út á suður svalir. Stigi niður af svölum í skjólgóðan garð með góðri viðarverönd og að hluta tyrfður.
Eldhús: Hálf opið við stofu.Mikil aukin lofthæð með innbyggðri lýsingu. Innrétting með góðu skápa og vinnuplássi. Smeg gaseldavél og innbyggð uppþvottavél.
Sjónvarpskrókur: Vegfastar bókahillur. Góð tenging við eldhús og stofu.
Baðherbergi: Flot á gólfi, veggir flíslagðir að stórum hluta. Bað með sturtu, upphengt klósett, handklæðaofn ásamt baðinnréttingu með baðinnréttingu með skúffum, vask og viðarplötu ásamt spegli með lýsingu fyrir ofan vask.
Svefnherbergi III: Rúmgott með góðu opnu skápaplássi. Útgengt út á svalir. Fallegt útsýni til norðurs.
Svefnherbergi IV: Rúmgott. upphengdar hillur. Fallegt útsýni til norðurs.

Bílskúr: Innbyggður. Með rafmagni ásamt heitu og köldu vatni. 18,3fm.

Fallegt og vel hannað raðhús í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabænum.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. maí. 2007
30.270.000 kr.
35.000.000 kr.
166.3 m²
210.463 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík