Lýsing
Húsið er steypt , múrað að utan, þak er flatt klætt með soðnum dúk. Byggingarár er 2017. Eignin er laus við kaupsamning.
Að innan skiptist íbúðin í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús.
Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Nánari lýsing:
Anddyri með góðu hengi og fataskáp. Inn af anddyri er rúmgott þvottahús. Gangur. Sérgeymsla innan íbúðar sem er í dag nýtt sem þriðja svefnherbergið (gluggalaust en með öndun). Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi með fataskápum. Flíslagt baðherbergi með walk-in sturtu, falleg innrétting með handlaug, upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggi er á baðherberginu.
Eldhúsið er opið inn að stofu og er með mjög góðu skápaplássi. Eyja með góðu vinnuborði. Tengi er fyrir uppþvottavél og háfur fyrir ofan eldavél. Eldhústæki fylgja íbúðinni.
Stofan er björt og með fallegum gólfsíðum gluggum. Útgengt er á fallegan sólpall sem er með skjólgirðingu.
Eignin er virkilega björt og rúnmgóð. Sérinnagngur er í íbúðina
Álalækur 2 er steinsteypt fjórbýlishús á tveimur hæðum. Þak er flatt, klætt með dúk. Lóðin er sameiginleg eignarlóð Álalæks 2, 4 og 6. Alls eru 24 bílastæði í sameign á lóð. Eigendur Álalæks 2,4 og 6 eru í viðræðum um að malbika bílastæði.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður