Lýsing
Einstaklega falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með aukinni lofthæð á 2. hæð (efri hæð) í nýlegu viðhalds litlu lyftuhúsi við Norðurhellu 13 í Hafnarfirði. Rúmgóðar svalir. Geymsla er innan íbúðar. Gott skápapláss/geymslupláss er í íbúðinni. Eignin getur verið laus fljótlega.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 45,6 m². og er geymsla innan íbúðar.
Samkvæmt teikningu skiptist innra skipulag í: Anddyri, geymslu, baðherbergi, eldhús, stofu og opið svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Anddyri er með parketi á gólfi.
Eldhús er í samliggjandi rými með stofu. Falleg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppvottavél, tækin fylgja, skápar ná upp í loft. Eyja með span helluborði og bakaraofni, hægt er að sitja við eyjuna og parket á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi og í opnu rými við eldhús. Úr stofunni er útgengt út á rúmgóðar svalir.
Svefnherbergi er hálf lokað með góðum fataskáp sem nær upp í loft og parketi á gólfi.
Baðherbergi rúmgott með upphengdu salerni, handklæðaofn og innangeng sturta. Innrétting með vaski og góðu geymsluplássi. Aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara og skápur fyrir ofan. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Geymsla með nýlegum fataskáp er innan íbúðar við anddyri, rennihurð og parket á gólfi.
Húsið var byggt árið 2021 og öll helsta þjónusta í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.