Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
einbýlishús

Hamarstígur 22

600 Akureyri

108.900.000 kr.

450.932 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2147070

Fasteignamat

97.700.000 kr.

Brunabótamat

116.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1955
svg
241,5 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Hamarstígur 22 - Reisulegt 6 herbergja einbýlishús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr - Stærð 241,5 m².
Vel staðsett og nokkuð endurnýjað Sigvaldahús. 

Hvammur fasteignasala - 466-1600 - siggithrastar@kaupa.is


Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Aðalhæð: Forstofa, stofa, borðstofa, eldhús og snyrting.
Þakhæð: Þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Kjallari: Svefnherbergi, eldhúskrókur, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslurými. 

Aðalhæð:
Forstofa, gengið er inn í húsið upp steyptan stiga á suðurhlið hússins, forstofa er flísalögð með góðum fataskápum. 
Stofa er mjög björt og rúmgóð, loft eru tekin upp og er harðparket á gólfi.
Eldhús og borðstofa eru í sama rými, eldhúsinnréttingin er einkar glæsileg frá TAK með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Bakarofni í vinnuhæð ásamt combi ofni og spanhelluborð. Borðplata er frá Granítsteinum. Harðparket er á gólfi eldhúss. Úr eldhúsi er gengið niður steyptan stiga í kjallara.
Snyrting er innaf forstofu, þar er vaskur og klósett og opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi. 

Þakhæð:
Svefnherbergi eru þrjú talsins, eru þau öll með harðparketi á gólfi og eru góðir fataskápar í hjónaherbergi. 
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, wc og baðkari með sturtutækjum. Flísar eru á gólfi. 

Kjallari:
Svefnherbergi er afar rúmgott með góðum gluggum, fataskáp og plastparketi á gólfi. 
Eldhúskrókur er með ljósri innréttingu og borðkrók. 
Baðherbergi, þar er sturtuklefi, klósett og vaskur. Opnanlegur gluggi og flísar á gólfi. 
Þvottahús, er með sérinngangi norðan við hús, þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúr. 
Bílskúr er í dag hólfaður niður þannig að búið er að útbúa herbergi með sérinngangi í innri hluta bílskúrs, er honum skipt upp með léttum vegg sem væri lítið mál að taka niður aftur. Ytri hluti bílskúr er notaður sem geymsla í dag. Bílskúrsflísar eru á öllu rýminu og er rafræn opnun á bílskúrshurð. 
Geymslurými er bæði undir stiga sem og hluta bílskúrs. 

Annað:
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum og hefur öll vinna verið unnin af fagmönnum.
- 2020 Þak endurnýjað
- 2019 Eldhús endurnýjað.
- 2019 Forstofa endurnýjuð með skápum frá TAK
- 2019 Skipt um rafmagnstöflu og dregið nýtt í hluta húss (aðalhæð og þakhæð)
- 2019 Sérsmíðaður stigi settur milli aðalhæðar og þakhæðar frá Járnsmiðju Óðins
Útbúin hefur verið útleigueining í kjallara með sérinngangi austan við hús, en einnig er innangengt úr þvottahúsi.
Hiti er í bílaplani sem er einkar stórt og einnig í stétt. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. jún. 2017
38.900.000 kr.
54.500.000 kr.
241.5 m²
225.673 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone