Lýsing
Eskihlíð 13, 105 Reykjavík seldist á einu opnu húsi og er í fjármögnunarferli. Margir eru að leita að fasteignum sem þarf að gera upp víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Erum því með marga kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign.
Á hvað eru fasteignir í 105 Reykjavík að seljast? Smelltu hér til að sjá alla kaupsamninga á sambærilegum eignum
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign.
Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu
Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
Fylgdu mér á TikTok
2ja herbergja íbúð í risi við Eskihlíð 13, 105 Reykjavík. Íbúðin er töluvert undir súð og því eru nýtanlegir fermetrar umtalsvert fleiri. Töluvert er af súðargeymslum í íbúðinni, bæði innan íbúðar og á stigagangi. Íbúðin er skráð 41,4 fm og þar af er 0.9 fm sérgeymsla í risi. Einnig er háaloft yfir íbúðinni.
Lýsing eignar: Gengið inn um sameiginlegan inngang og komið inn í stofu með parketi. Gífurlega fallegir kvistgluggar eru í íbúðinni. Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataslá. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og upp hálfan vegg, baðkar, innrétt og þakgluggi. Eldhús er með léttum einingum, kvistgluggi og borðkrókur. Sameiginlegt þvottahús í sameign sem og sameiginleg geymsla þar sem hver hefur afnot af hluta af hillum.
Húsið er vel staðsett og stutt í allt. Hentar mjög vel fyrir bíllausan lífstíl. Garðurinn er stór og gróinn með rabbabarabeði. Róleg gata en stutt í miðbæinn.
Búið er að samþykkja viðamiklar framkvæmdir á húsinu s.s. múrviðgerð og steining á ytra byrði hússins og endurnýjun allra glugga í risi. Þessar framkvæmdir verða greiddar af seljanda og eru áætluð verklok 2025 samkvæmt samningi við verktaka.
Á hvað eru hæðir í 105 Reykjavík að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði