Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
![](/data/agent/5e4d9a52b9d70Aðalheiður_Karsldottir2012.jpg)
Upplýsingar
0 m²
3 herb.
2 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*Íbúð í lyftuhúsnæði á Las Ramblas Golfvellinum, stutt í golf, strendur, verslanir og veitingastaði*
Vel skipulögð íbúð frábærlega staðsett á vinsæla Las Ramblas golfvellinum. Eigninni fylgir sér stæði í lokaðri bílageymslu og geymsla. 2 svefnherbergi, 2 baðherbergi, rúmgott eldhús, geymsla og þvottahús, borðstofa og stofa í opnu rými. Rúmgóðar svalir. Stór sameiginleg sundlaug. Fullbúin með húsgögnum. Húsið er vel staðsett hverfinu, einu af vinsælustu hverfum Orihuela Costa. Örstutt göngufæri í verslanir, veitingastaði og matvöruverslanir.
Allar upplýsingar gefur Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. GSM 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is
Nánari lýsing:
Eignin er í lyftuhúsnæði og er gengið inn um sérinngang og í forstofu. Svefnherbergin tvö eru í sitt hvorum enda íbúðarinnar. Stærra svefnherbergið er með sér baðherbergi með baðkari. Við hlið minna svefnherbergisins er einnig baðherbergi með sturtu. Stofa og borðstofa eru í opnu rými og er skemmtileg tenging á milli borðstofu og eldhúss. Eldhús er mjög rúmgott og í góðu standi. Inn af eldhúsi er þvottahús/geymsla. Eignin er með loftkælingu/hita í báðum svefnherbergjum og í stofu. Lyftan gengur beint niður í bílakjallara og þar er einnig sérgeymsla. Sundlaugargarðurinn er við hlið hússins, einungis nokkrum skrefum frá aðalinngangi.
Hér er um að ræða frábæra eign hvort sem er til útleigu, til að eyða frídögum eða búa í allt árið. Einstakt gróið umhverfi, með verslanir, veitingastaði og golf í göngufæri. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á ströndina. Einn af bestu alþjóðlegu skólum Spánar í hverfinu.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni t.d. La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Lo Romero.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Frábær eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.
Verð 189.000 evrur (27.600.000 ISK) + kostn. gengi 1Evra=146 ISK
Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.
Eiginleikar: rúmgóðar svalir, sundlaug, loftkæling, golf, útsýni, lyfta, geymsla, stæði í bílageymslu
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas