Lýsing
Miklaborg og Móeiður Svala lögg. fasteignasali kynna í einkasölu:
Vel staðsett og fallegt einbýlishús við Kríunes 7 með innbyggðum tvöföldum bílskúr innarlega í botnlanga á Arnarnesinu. Um er að ræða 5-6 herbergja einbýlishús með glæsilegu sameiginlegu rými.
Húsið er skráð 230fm og þar af er bílskúr 44,8fm. Einstaklega skjólríkur og fallegur garður sem snýr í suður. Örstutt er út á stofnbraut og í alla helstu þjónustu. Frábært fjölskylduhús sem býður upp á mikla möguleika.
Húsið skiptist þannig: Rúmgott anddyri/forstofa, hol, stórt opið rými þar sem eldhús, borðstofa og stofa sameinast, tvö baðherbergi, fataherbergi, hjónaherbergi og 4 til 5 barnaherbergi. Tvöfaldur innbyggður bílskúr með geymslulofti og þvottahúsi. Góður pallur sem snýr í suður, gengið er út frá stofu og einnig frá hjónaherbergi.
Komið er inn í rúmgóða og bjarta forstofu og þaðan gengið upp stiga á aðalhæð hússins. Inngengt er úr forstofunni í tvöfaldan innbyggðan bílskúr. Opið og rúmgott hol myndar miðju hússins, þaðan er stigi upp á efra loft sem ekki er inni í heildar fermetrafjölda. Efra loftið notað í dag sem skrifstofa og er svefnherbergi inn af því. Gengið er inn í stórt opið rými sem myndar í dag glæsilegt eldhús með stórri eldunareyju sem hægt er að sitja við. Mikið skápapláss er á eyjunni. Borðstofa og stór setustofa með útgengt á suðurpall og stóran skjólríkan garð. Gengið er að holinu þar má finna gestasalerni og fataherbergi. Á svefnherbergisgangi eru 2 barnaherbergi, sem áður voru 3 en lítið mál er að breyta aftur til fyrra horfs, rúmgott hjónaherbergi með skápum og útgengt á suður pall. Stórt baðherbergi með sturtu og baðkari, góðri innréttingu og upphengdu salerni, gólf og veggir flísalagðir, handklæðaofn.
Á svefnherbergisgangi eru góðir auka fataskápar. Tvöfaldur bílskúr með sjálfvirkri hurðaopnun á annarri hurðinni. Rúmgott geymsluloft og epoxí á gólfum. Inn af bílskúr er rúmgott þvottahús með upphækkun fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Um er að ræða fallegt 5-6 herbergja fjölskylduhús sem er vel staðsett sem býður upp á mikla möguleika. Leyfilegt er að byggja 292fm ef þeir eru innan byggingareits, án þess að þörf sé á grenndarkynningu. (nánari uppl hjá fasteignasala)
Garðabær er bæjarfélag með mikinn metnað og áherslan lögð á mikla þjónustu við bæjarbúa. Skólar, leikskólar, verslanir, veitingastaðir og öflugt íþróttalíf einkennir Garðabæ.
Í Garðabæ er að finna gólfvelli, fótbolta-, körfubolta og handknattleikshallir eru í Garðabæ ásamt góðri sundlaug.
Aðeins einkaskoðanir í boði. Vinsamlegast hafið samband við Móeiði Svölu lögg. fasteignasala í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is