Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
einbýlishús

Bjargslundur 17

270 Mosfellsbær

137.000.000 kr.

1.016.320 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2217052

Fasteignamat

102.850.000 kr.

Brunabótamat

64.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1977
svg
134,8 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali -  svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt einbýlishús á einni hæð innst í botnlanga á glæsilegri 1.889,9 m2 eignarlóð við Bjargslund 17 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 134,8 m2 en búið er að teikna stækkun og bílskúr þar sem heildarstærð fer úr 134,8 m2 í 361,9 m2. Í heild má byggja allt að 370 m2 á lóðinni skv. deiluskipulagi. Um er að ræða frábærlega staðsetta eign í útjaðri byggðar sem býður upp á mikla möguleika. Rétt við lóðarmörkin rennur Varmá og er stutt í náttúruna og gönguleiðir.  

Skv. upplýsingum frá seljanda var farið í eftirfarandi framkvæmdir: Árið 2016 var skipt um eldhúsinnréttingu, settur gólfhiti í alrými og skipt um gólfefni. Rafmagn var yfirfarið og mikið endurnýjað. Í dag er verið að taka baðherbergi í gegn en seljandi klárar það fyrir afhendingu. Á baðherbergi verður flísalagt gólf, innrétting, 'walk in' sturta, baðkar og salerni. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit og nánari upplýsingar

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólf
Stofa er með parketi á gólfi. Mikil lofthæð, gólfsíðir gluggar og innbyggð lýsing. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Eldhús er með hvítri innrétting og parketi á gólfi. Í innréttingu er span helluborð, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar, ofnskúffa og vaskur. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parket á gólfi. Er í dag nýtt sem geymsla.
Gangur er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi verður með flísum á gólfi, innréttingu, 'walk in' sturtu, baðkari og salerni.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu með skolvask. Gert er ráð fyrir tveimur þvottavélum og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er gengið útgengt.

Lóð. Húsið stendur innst í botnlanga á um 1.890 m2 eignarlóð rétt við Varmá. Á lóðinni óskráð geymsla (um 15 m2) og stór timburverönd í suðurátt. Stórt bílaplan og hleðslustöð sem fylgir. 

Nýjar teikningar: Búið er að teikna stækkun fyrir húsið. Skv. teikningu er gert ráð fyrir einbýli 207,1 m2, bílskúr 80,0 m2 og nýtanlegu rými 74,8 m2 eða samtals 361,9 m2. Skv. upplýsingum frá seljanda er búið að greiða gatnagerðargjöld fyrir allt að 220 m2. Einnig er búið að teikna burðarþol og lagnauppdrætti sem fylgir með.

Verð kr. 137.000.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. júl. 2006
26.040.000 kr.
35.000.000 kr.
134.8 m²
259.644 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ