Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
244 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Domusnova fasteignasala og Sölvi kynna:  Glæsilegt, bjart og vel skipulagt  244 fm endaraðhús á einstökum útsýnisstað við Grænlandsleið 12 í Reykjavík. 
HÚSIÐ ER STAÐSETT Á EINSTÖKUM ÚTSÝNISSTAÐ fyrir neðan götu með inngang á efri hæð þar sem er bílskúr, eldhús og stofur með mikilli lofthæð ásamt baðherbergi. Stórir gluggar á aðalhæð til suðurs, vesturs og norðurs með stórkostlegu útsýni yfir höfuðborgina, Grafarvoginn, út á sundin að Snæfellsjökli, og Esjunni. Gott pláss er framan við hús næg bílastæði, hellulögð stétt með snjóbræðslu í bílastæði og stétt að anddyri.  Glæsileg lóð stórir sólpallar með skjólgirðingum umhverfis palla til suðurs, vesturs og norðurs með heitum og köldum potti, sauna og fallegri lýsingu við pall. Lóðin er snyrtileg og viðhaldslítil. Staðsetning er afar góð í endanum á rólegri götu.

Fjögur svefnherbergi er í húsinu og er inngengt úr hjónaherbergi inn á baðherbergi og fataherbergi á neðri hæð. Tvö baðherbergi, eitt á sitthvorri hæðinni. Eldhús er opið við borðstofu efri hæðar. Fallegar innréttingar og steinn á borðum. Inngengt er í rúmgott þvottaherbergi frá eldhúsi og þaðan í innbyggðan bílskúr þar sem búið er að útbúa hurbergi inn af bílskúr.  Sjónvarpshol er staðsett á neðri hæð og gott vinnurými/skrifstofa við svefnherbergisgang. Gólfhitakerfi er í öllu húsinu og lýsing frá Lumex. 

Eignin er í heild skráð 244 fm skv. Hms, þar af er íbúðarhlutinn  215,1 fm og bílskúr 28,9 fm. 
Fasteignamat ársins 2025 er kr. 147.350.000.-    Byggingarár er 2003.


Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is 

Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum. Gólfhiti og gólfsíðir gluggar til suðurs og austurs.
Baðherbergi I: Flísalagðir veggir og gólf. Upphengt salerni, sturta og innrétting með steinborðplötu. Gluggi á baðherbergi.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu. Innfelld lýsing og steinn á borðum. Siemens stál bakaraofn, spanhelluborð, stál háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Lýsing undir skápum og gólfhiti. Eldhús er opið borðstofu með gólfsíðum gluggum til norðurs með einstöku og miklu útsýni.
Borðstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og gólfhita. Innfelld lýsing í uppteknum bogaloftum. Gólfsíðir gluggar með glæsilegu útsýni til norðurs, austurs og vesturs. 
Stofa: Er stór með niðurlímdu parketi á gólfum. Mikil lofthæð og stórir gólfsíðir gluggar til suðurs, vesturs og norðurs. Afar glæsilegt útsýni yfir höfuðborgina, Grafarvoginn, til fjalla og víðar. Útgengi á glæsilega sólpalla frá stofu í suðaustur með skjólveggjum á framhlið hússins.
Verönd/sólpallur: Er stór og afgirtur og snúa til suðurs, vesturs og norðurs. Afar glæsilegt útsýni til vesturs og norðurs frá veröndum yfir höfuðborgina, Grafarvoginn og til fjalla. Gengið er niður á neðri verönd frá efri verönd sem snýr í suð-suðvestur, þar er heitur pottur og sauna. Falleg kvöldlýsing á verönd.
Þvottaherbergi: Með Epoxy á gólfi og góðum innréttingum. Vinnuborð og vaskur. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara sem er staðsett í góðri vinnuhæð í innréttingu.
Herbergi við þvottahús inn af bílskúr: Ágætlega rúmgott með glugga í vestur, parket á gólfi.

Neðri hæð: Gengið niður steyptan parketlagðan stiga með fallegu glerhandriði.
Sjónvarpshol: Er rúmgott með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum til norðurs, vesturs og austurs. Útgengi á neðri verönd/lóð frá sjónvarpsherbergi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum til norðurs og vesturs. Inngengt í fataherbergi og baðherbergi II frá hjónaherbergi.
Fataherbergi: Með parketi á gólfi og góðum innréttingum. 
Baðherbergi II: Með flísum á gólfum og veggjum. Hornbaðkar, upphengt salerni og góðir skápar. Falleg innrétting við vask með steini á borðum og speglaskáp fyrir ofan.
Svefngangur/vinnurými: Framan við svefnherbergi. Gott rými með parketi á gólfi og útloftun.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og gluggum til norðurs.

Bílskúr: Er 28,9 fermetrar að stærð, snyrtilegur með epoxy á gólfum. Rafmagnshurðaopnari á bílskúrshurð, upphitaður, heitt og kalt vatn og gluggi til norðurs. Innangengt er í bílskúr frá þvottaherbergi. Gott milliloft er yfir hluta bílskúrs.

Nánasta umhverfi:
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Grænlandsleið Örstutt er í alla þjónustu og verslarnir, skóla og leikskóla. Stutt í golfvöll GR í Grafarholti og Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.  


Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 
 
 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. okt. 2019
81.750.000 kr.
91.500.000 kr.
244 m²
375.000 kr.
16. sep. 2010
49.950.000 kr.
27.250.000 kr.
244 m²
111.680 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone