Lýsing
Baldur fasteignasali - Beinn sími: 450-0000 - baldur@fastgardur.is
Falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð við Ránargötu 9 í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er einstaklega hlýleg með aukinni lofthæð, fallegum upprunalegum karakter og skjólsælum suðurgarði. Útgengt er úr stofu á stórar suðursvalir með stiga niður í garð.
Eignin skiptist í forstofu, tvær samliggjandi stofur, svefnherbergi, eldhús og snyrtingu á 1. hæð, auk sturtuherbergis geymslu og sameiginlegs þvottahúss í kjallara. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 57,7 fermetrar.
Nánari lýsing:
Stofa / borðstofa: Tvær samliggjandi stofur með fallegum gluggum. Útgengt á stórar suðursvalir úr fremri stofunni, en innri stofan er nýtt sem svefnherbergi í dag. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott með parketi á gólfi.
Eldhús: Nýleg svört innrétting með góðu skápaplássi og vönduðum tækjum. Korkflísar á gólfi. Inn af eldhúsi er búrskápur/geymsla.
Snyrting: Nýlega endurnýjað. Vaskskáður, upphengt salerni og flísar á gólfi.
Kjallari:
Sturtuherbergi: Flísalagt gólf og flísalögð walk-in sturta. Hvítur skápur og stór spegill.
Geymsla: Rúmgóð geymsla við hlið sturtuherbergis. Innangengt er í sameiginlegt þvottahús úr kjallara.
Svalir: Svalirnar eru stórar og snúa í suður. Frá svölum er stigi niður í garð
Annað:
• Aukin lofthæð í íbúðinni.
• Skipt var um járn á þaki sumarið 2020.
• Skólp hefur verið endurnýjað.
• Einstök staðsetning í miðbænum með verslanir, veitingastaði og þjónustu í göngufæri.
Mjög sjarmerandi eign á eftirsóttum stað í miðborginni!
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður