Lýsing
Glæsilega nýja þriggja herbergja 93,8 m2 íbúð með sér inngangi úr porti í endurbyggðu húsi við í Brautarholt 4 í Reykjavík.
Íbúðin er á jarðhæð með 13,9 m2 sérafnotareit út frá stofu.
*Innréttingar eru af vandaðri gerð frá Voke III.
*Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir.
*Þvottavél og þurrkari fylgir.
*Aukin lofthæð í íbúð.
*Lyfta er í húsinu.
Eignin skiptist í hol, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu í rúmgóðu opnu rými og sér geymslu sem staðsett er á jarðhæð í porti.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 87,7 m2 merkt 0103 og geymsla er 6,1 m2 merkt 0110, samtals 93,8 m2 að stærð.
Sækja söluyfirlit strax
Eignin fæst afhent við kaupsamning
Nánari lýsing
Hol er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og á tveimur veggjum, með upphengdu salerni, sturtu með glerskilrúmi, baðinnréttingu, speglaskáp yfir, þvottahúsinnréttingu með þvottavél og þurrkara og handklæðaofni á vegg.
Eldhús og stofa. Eldhúsinnrétting er með innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Í eyju er bakarofn, helluborð og lofthengdur háfur yfir. Úr stofunni er útgengi á timburklæddan sérafnotareit í suður.
Geymsla er staðsett í lokuðu porti með sér inngangi.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is / 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat