Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1904
36,6 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Opið hús þriðjudaginn 11. mars frá kl 16:45 til 17:30 - Miðstræti 10, 101 Reykjavík - íbúð 0302
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:
Falleg og sjarmerandi risíbúð í glæsilegu húsi á eftirsóttum stað við eina af elstu götum borgarinnar í Miðstræti 10 -
Fallegt miðborgarútsýni er úr íbúðinni yfir Þingholtin og Reykjavíkurtjörn
Íbúðin er skráð 36,6 fm hjá HMS en nýtanlegur gólfflötur er nokkuð stærri þar sem hluti hennar er undir súð.
Lýsing eignar:
Gengið upp timburstiga tvær hæðir, á stigapalli framan við íbúðina eru sameiginlegar svalir sem snúa í suður.
Setustofa: Rúmgóð og björt stofa með fallegu útsýni yfir Reykjavíkurtjörn, gegnheil hvítlökkuð gólfborð, fallegir listar á gólfi og í loftum setja mikinn svip á eignina.
Eldhús: Hvít nýlega endurnýjuð innrétting, baðkar er í eldhúsinu sem er í takti við það sem tíðkaðist í mörgum húsa frá þessum tíma, vaskur við hlið baðkarsins, hvítlökkuð gólfborð, gluggar.
Svefnherbergi: Á vinstri hönd þegar komið er inn í íbúðina, hvítlökkuð gólfborð, fataskápur.
Salerni: úr eldhúsi er gengið fram á sameiginlegan gang, við ganginn er salerni með glugga sem íbúðin hefur afnot af.
Úr ganginum er einnig hægt að komast niður bakstigahús hússins og niður í kjallara þar sem fylgir íbúðinni aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi.
Á sameiginlegu rislofti yfir eigninni er lítil geymsla sem íbúðin hefur haft afnot af.
Garðurinn er stór, gróinn, skjólgóður og snýr í suður.
Húsið var mikið endurnýjað og viðgert á níunda áratugnum og var þá m.a. klæðning hússins endurnýjuð og timburskraut einnig.
Einstök íbúð með mikinn karakter í hjarta borgarinnar - stutt í alla helstu verslun og þjónustu - verslanir, veitingastaði og afþreyingu af ýmsu tagi sem finna má í miðborginni.
Ágrip af sögu hússins fengið af Facebook síðu Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings.
Húsið var teiknað og reist af Einari J. Pálssyni, einhverjum flinkasta húsasmiðnum í Reykjavík á fyrri tíð. Hann hafði lært bæði húsateiknun og húsamálun í Kaupmannahöfn en meðal annarra verka hans er gamli Iðnskólinn við Lækjargötu og líklega Iðnó líka. Fyrstu árin átti hann sjálfur þetta hús og bjó í því. Á því eru mörg klassísk einkenni, svo sem band með smákröppum um miðju húsins og rákaðar hálfsúlur á hornum. Útbyggt stigahús á gafli er sérstaklega glæsilegt með svölum og bogagluggum settum lituðu gleri á efri hæð. Vindskeiðar eru útskornar af Stefáni Eiríkssyni myndskera. Húsið var enn skrautlegra í upphafi og voru þá m.a. rósabekkir yfir gluggum. Þegar húsið var byggt árið 1903 þótti það eitt hið veglegasta í bænum og leigðu þar ýmsir þjóðþekktir menn, svo sem Sveinn Björnsson, síðar forseti Íslands, Bjarni Jónsson frá Vogi, og dr. Alexander Jóhannesson, síðar háskólarektor. Frá 1924 til dauðadags 1938 bjó svo í húsinu Jón Baldvinsson forseti ASÍ og formaður Alþýðuflokksins ásamt konu sinni Júlíönu Guðmundsdóttur.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is
Þórður Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 896-4015 / thordur@hibyli.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. ágú. 2021
26.550.000 kr.
36.500.000 kr.
36.6 m²
997.268 kr.
7. des. 2020
25.300.000 kr.
16.000.000 kr.
36.6 m²
437.158 kr.
15. jan. 2013
12.150.000 kr.
15.700.000 kr.
36.6 m²
428.962 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025