Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
svg

504

svg

422  Skoðendur

svg

Skráð  11. mar. 2025

fjölbýlishús

Breiðvangur 32

220 Hafnarfjörður

78.900.000 kr.

565.186 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2074030

Fasteignamat

73.750.000 kr.

Brunabótamat

60.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
139,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Prima fasteignasala kynna: Falleg 139,6 fm 4ra herbergja íbúð með glæsilegu útsýni á efstu hæð og góðum bílskúr á fjölskylduvænum stað í Norðurbænum í Hafnarfirði. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 139,6 m2, þar af íbúð 107,9 fm, geymsla: 7,7 fm og bílskúr: 24 fm. Auk þess er geymsla sem ekki er skráð í fm tölu er ca 14 fm. 

Nánari lýsing:
Komið  er inn i stórt hol sem tengir aðalrými eignarinnar saman, oft nýtt sem sjónvarpshol. Svefnherbergisgangur með góðum skápum. Tvö barnaherbergi. Hjónaherbergi með góðum nýjum fataskápum. Flísalagt baðherbergi með góðri baðinnréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu, baðherbergi var endurnýjað 2018. Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, gott skápapláss, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur. Þvottahús er inn af eldhúsi. Stór, björt stofa og borðstofa með stórum vestursvölum og glæsilegu útsýni.
Í kjallara er sérgeymsla, hjóla- og vagnageymsla, lagnarými/áhaldageymsla og einnig ca 14 fm lokuð geymsla sem ekki er skráð í fm tölu eignarinnar, sú geymsla er sameignleg með einni annari íbúð.
 
Bílskúr: Stendur sér í bílskúrslengju og er 24 fm. Hiti, rafmagn, vatn, vinnuborð og bílskúrshurðaopnari.
 
Gólfefni húss: Parket og flísar og eru öll nýleg. Eins eru allir ofnar í íbúðinni nýjir.
 
Lóð:
Lóðin er sameignleg, bílastæði og göngustígar steyptir. Garðurinn er tyrfður og með trjágróðri. Sameiginlegur leikvöllur er í garðinum.
 
Upplýsingar:
Eignin lítur vel út að innan. Skipulag eignar er mjög gott. Á síðustu árum er búið er að skipta um járn á þaki og klæða gaflana á húsinu. Austur hlið og norður gaflar voru múrviðgerðir og málaðir 2018. Einnig var skipt um gler þar sem var þörf á. Bílskúr var múraður að utan og vel við haldið. Stutt er í alla almenna þjónustu svo sem skóla, leikskóla og verslunarkjarna. Falleg íbúð sem vert er að skoða.

Nánari upplýsngar:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466/ oc@primafasteignir.is


 

Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. mar. 2019
42.450.000 kr.
43.250.000 kr.
139.6 m²
309.814 kr.
8. maí. 2014
23.850.000 kr.
28.003.000 kr.
139.6 m²
200.595 kr.
15. ágú. 2007
21.905.000 kr.
23.500.000 kr.
139.6 m²
168.338 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6