Opið hús: Ljósheimar 2, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 25. mars 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Fallegt útsýni. Svalir. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Lyfta.
Um er að ræða endaíbúð með gluggum á þremur hliðum hússins.
Íbúðin er skráð 97,8 fm, þar af geymsla 5,4 fm.
Gengið inn í forstofu.
Eldhús með efri og neðri skápum. Búr inn af eldhúsi. Nýtt helluborð og bakaofn. Gert ráð fyrir þvottvél eða uppþvottavél. Dúkur á gólfi.
Stofan er rúmgóðu, útgengt út á vestursvalir
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum.
Baðherbergi með innréttingu, upphengt salerni og sturtuklefi. Gluggi. Flísar á gólfi.
Gólfefni. Fallegt parket er á íbúðinni, flísar á baði og dúkur á eldhúsi.
Sameignin er snyrtileg. Hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi er í kjallara. Lyfta er í stigagangnum. Sjálfvirk opnun á útihurð.
Um er að ræða fallega íbúð þar sem stutt er í verslun og þjónustu, heilsugæslu, sundlaug, almenningssamgöngur ásamt leik- og grunnskóla.
Allar nánari upplýsingar veita Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.is og Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.