Lýsing
Eignin verður bara sýnd í bókaðri skoðun - sími 837-1177 eða tölvupóstur kristin@trausti.is
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu með eyju, marmaraborðplötu, tækjum frá Miele, innbyggðum ísskáp með klakavél frá Liebherr og uppþvottavél og parket á gólfi.
Stofa er opin við eldhús með útgengi á suðursvalir og parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, innbyggð blöndunartæki frá Vola, sturtu, handklæðaofn og flísar á gólfi og veggjum.
Bílskúr er með epoxy á gólfi og með rafdrifinni opnun á hurð.
Geymsla er inn af bílskúr og er með epoxy á gólfi.
Neðri hæð:
Hjónasvíta er með fataherbergi og baðherbergi með snyrtilegri innréttingu, innbyggð blöndunartæki frá Vola og sturtu. Parket er á gólfi í herberginu en flísar í fataherbergi og baðherbergi.
Þrjú barnaherbergi með parket á gólfum.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, innbyggð blöndunartæki frá Vola, handklæðaofn, baðkar og sturtu, flísar á gólfi og veggjum.
Sjónvarpshol með parket á gólfi.
Þvottahús er rúmgott með innréttingu og flísum á gólfi.
Húsið er staðsett á frábærum stað í Urriðaholtinu þar sem stutt er í leik- og grunnskóla. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða tölvupósti: kristin@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.