Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1906
svg
605,5 m²
svg
0 herb.
svg
Útsýni

Lýsing

Aðalsteinn Jón Bergdal lgfs. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu eitt af fallegri húsum miðbæjarins að Hverfisgötu 50 sem á sér ríka sögu. Þekktast fyrir að hýsa verslunina Hjá Báru í um 25 ára skeið til aldamótanna 2000. Í dag er búið að endurnýja húsið að mestu og eru 2 mjög fallegar og bjartar íbúðir í húsinu ásamt verslunarrými á 1. hæð og í kjallara þess. Nýlega er búið að endurnýja þak hússins og rennur.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.  Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt HMS er íbúð á 2. hæð er skráð 192,6 fm og þar af er endurnýjaður geymsluskúr á baklóð skráður 43,8 fm, íbúð á 3. hæð er skráð 98,1 fm og atvinnurými á 1. hæð og kjallara skráð 314,8 fm.

Íbúð á 2. hæð:
Aukin lofthæð í íbúðinni sem er öll endurnýjuð í skemmtilegum "retro/modern" stíl. Gegnheilt parket að mestu sem annaðhvort hefur verið pússað eða skipt um. Stórt eldhús með öllum þægindum, falleg innrétting, x-tra stórt spanhelluborð, 2 ofnar og annar combi (venjulegur og örbylgju), innbyggður ísskápur og uppþvottavél og vínkælir í innréttingu. Stór eyja með góðu vinnuplássi sem hægt er að sitja við. Stofa og borðstofa eru báðar rúmgóðar og bjartar. Svefnherbergi eru 2 og bæði mjög rúmgóð. Úr öðru svefnherbergi er útgengt á suðursvalir í bakgarð. Baðherbegi er rúmgott með stóra walk-in sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni og góða innréttingu og er flísalagt í hólf og gólf. Þvottahús innan íbúðar sem einnig væri hægt að nýta sem gestasalerni og eru lagnir til staðar fyrir það. Geymsluskúr sem skráður er með eigninni hefur verið alveg endurnýjaður og er stærri í fermetrum en skráning gefur til kynna.

Íbúð á 3. hæð:
Aukin lofthæð að stórum hluta í eigninni sem hefur nýlega verið tekin í gegn. Gólfflötur á hæð stærri en uppgefnir fermetrar þar sem hluti er undir súð. Gegnheilt parket að stærstum hluta en flísar á baðherbergi.   Eldhús með góðri innréttingu, stórri eyju með ofni og helluborði og mjög gott vinnupláss auk uppþvottavélar. Rúmgott alrými, stofa og borðstofa, með aukinni lofthæð að stærstum hluta. Innaf alrými er opið inn í einstaklega huggulegt íhugunar/lesherbergi. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með aukinni lofthæð að hluta, innfelldri lýsingu og hirslum og skápum.
Svefnherbergi II er rúmgott með aukinni lofthæð að hluta. Baðherbergi með baðkari með sturtu, ofn og handklæðaofn. Á baði er tengi og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og vegg að hluta. Suðursvalir sem snúa út að bakgarði.

Atvinnurými á jarðhæð og kjallara:
Jarðhæð skiptist í 2 góð verslunarrými, kaffistofu, baðherbergi og vinnustofu.
Kjallari skiptist í verslunarrými, kaffistofu og baðherbergi, lageraðstöðu og geymslurými.
Báðar hæðir eru með góða leigusamninga sem skila góðum tekjum.

Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu og verður Vatnsstígur frá Hverfisgötu upp á Laugaveg göngugata með skemmtilegu torgi og er fyrirhugað að þeim framkvæmdum ljúki í haust. Samfara því verður inngangur í verslunarrými á 1. hæð frá Vatnsstíg enduropnaður með hjólastólaaðgengi.
Nýlega hafa verið opnaðir skemmtilegir veitingastaðir á Hverfisgötunni og mjög skemmtilegt mannlíf allt um kring. Stutt í alla þjónustu og bæði grunn- og leikskóli í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is




 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Aðalsteinn Jón Bergdal
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. júl. 2021
72.800.000 kr.
64.900.000 kr.
192.6 m²
336.968 kr.
27. jún. 2013
36.600.000 kr.
42.000.000 kr.
192.6 m²
218.069 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík