Upplýsingar
Byggt 1990
95,4 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Hlíðarlundur 2 - 201
Vel skipulögð og björt fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í suðurenda. Eignin er samtals 114,7 fm., þar af er geymsla skráð 19,3 fm. í kjallara. Mjög vinsæl staðsetning í næsta nágrenni við leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði KA.
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og þrjú svefnherbergi.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Gangur er með parket á gólfi.
Stofa er björt með parket á gólfi og útgengt er á svalir til suðvesturs.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu, þar er stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn er í vinnuhæð.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og skápum.
Baðherbergi er með flísar á gólfum og veggjum í kringum baðkar. Sturtutæki í baðkari, upphengt salerni og mjög rúmgóð innrétting í kringum vask. Opnanlegt fag er í rýminu.
Þvottahús er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Annað:
-Svalir eru rúmgóðar og snúa vel við sólu
-Nýlegt gler í gluggum
-Tengi fyrir rafbíla við bílaplan
-Hiti í steyptum stéttum og stiga
-Sér geymsla í sameign í kjallara og tvær stórar sameignargeymslur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955