Lýsing
Góð staðsetning stutt er í alla almenna þjónustu, meðal annars í leikskólann Fífusali, Salaskóla, Sundlaug, Gerplu, Nettó, Heilsugæslu og apótek. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Forsalir 1 er steypt sjö hæða 26 íbúða fjölbýlishús. Eignin skiptist í íbúð 82.4 m² og geymslu 9.2 m², samtals 91.6 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri, stofa og borðstofa, eldhús, gangur/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameign: Sér geymsla, bílastæði í bílakjallara, inngangur, hjóla- og vagnageymsla og sorptunnugeymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri með tvöföldum fataskáp, þaðan er innangengt í þvottahús.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými, þaðan er útgengt út á yfirbyggðar svalir til austurs.
Eldhús er hálfopið við stofu, L-laga innrétting, borðkrókur, AEG helluborð, ofn og vifta, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp.
Herbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, veggskápur, salerni, baðkar og hanklæðaofn, gluggi.
Þvottahús, vinnuborð með vask, pláss fyrir tvær vélar.
Gólfefni: Parket er á stofu og borðstofu, gangi/holi og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
Forsalir 1 er sjö hæða fjölbýlishús,í húsinu eru 26 íbúðir, tvær á 1. hæð (jarðhæð), fjórar á 2.- 7. hæð. Aðalinngangur er á 2. hæð, þar eru sameiginleg bílastæði.
Bílgeymsla er undir bílastæðum við austurhlið að mestu falin í jörð, þar eru 26 bílastæði. Lyfta er í húsinu. Sameiginleg lóð er frágengin. Húsfélag er starfrækt í eigninni.
Lóð er sameiginleg 4924.0 m² leigulóð í eigu Kópavogsbæjar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-6255.
Stærð: Íbúð 91.6 m². Bílastæði 0.0 m². Samtals 91.6 m².
Brunabótamat: 69.650.000 kr.
Fasteignamat: 51.410.000 kr
Byggingarár: 2001.
Byggingarefni: Steypa.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala