Lýsing
Húsið er steypt, byggt árið 1974. Íbúð 107.9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri/skáli, stofa og borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og þvottahús.
Í sameign: Anddyri, stigahús Sér geymsla 6.3 m² og helmingshlutur í annarri geymslu í kjallara, hjóla- og vagnageymsla.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri/skála, mynddyrasími, gangur er innan við skála, fataskápar (Kvikk) yfir heilan vegg.
Stofa og borðstofa, útgengt út á svalir í vesturátt með útsýni yfir Garðaholt, Álftanes, Reykjanes og að Snæfellsjökli.
Eldhús, Kvikk innrétting með eyju, tækjaskáp og búrskáp, Siemens spanhelluborð í eyju, háfur og Siemens ofn í vinnuhæð, innbyggð AEG uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Hjónaherbergi er með fataskápum (Kvikk) yfir heilan vegg.
Barnaherbergin eru tvö, hvorugt með fataskápum (fataskápar á gangi eru hugsaðir fyrir herbergin).
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar, Damixa blöndunartæki, upphengt salerni, vaskinnrétting, handklæðaofn, gluggi, baðherbergi var endurnýjað 2015.
Þvottahús, er innaf eldhúsi, vinnuborð, vaskur, rafmagnstafla, gluggi.
Gólfefni: Flæðandi gegnheilt parket (íþróttagólfefni) er á öllum rýmum nema baðherbergi og þvottahúsi. Flísar á baðherbergi. Málað gólf í þvottahúsi. Innihurðar frá Birgisson.
Rafmagnstafla í íbúð hefur verið endurnýjuð. Sameign er nýmáluð, teppi á stiga er nýlegt.
Sér geymsla 6.3 m² er í kjallara, og helmingshlutur í annarri geymslu í kjallara (ekki skráð í m² tölu eignarinnar).
Breiðvangur 30-32 samanstendur af tveimur stigagöngum, átta íbúðir eru í hvoru húsi, tvær íbúðir á hæð. Húsið er staðsteypt, timbur gluggar og hurðar, valmaþak.
Lóðin er sameiginleg, steypt stétt liggur að húsinu frá bílastæði. Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. Lóð er sameiginleg 3305.8 m² leigulóð í eigu Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 207-4021.
Stærð: Íbúð 107.9 m².
Brunabótamat: 53.900.000 kr.
Fasteignamat: 63.900.000 kr
Byggingarár: 1974.
Byggingarefni: Steypa.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala