Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðný Ósk Sigurgeirsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
199,1 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 29. apríl 2025 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Opið hús þriðjudaginn 29.apríl frá kl 17:00-17:30

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir virkilega glæsilegt og vandað parhús með innbyggðum bílskúr við Hádegisskarð 17, í Skarðshlíð, Hafnarfirði.
Húsið er skráð 199,1 fm skv. HMS, þar af er bílskúr 26,1 fm. Einstaklega gott og vel skipulagt fjölskylduhús.


Tvennar svalir
Skóli og leikskóli í göngufæri
Nýlegt harðparket og flísar á öllum gólfum
Fallegt útsýni og gólfsíðir gluggar
Aukin lofthæð
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl
Mikið skápa og geymslupláss
Sérsmíðaðar innfelldar hurðir
Free@Home ljósastýring á öllum ljósum (hægt að stjórna með appi)


Komið er inn í húsið á flísalagðan stigapall þaðan sem gengið er á efri og neðri hæð. Þar er rúmgott svefnherbergi með gluggum á tvo vegu og mikilli lofthæð, fataskápur er í herberginu. Þvottahús er með nýrri innréttingu og skolvaski. Úr þvottahúsi er svo gengt inn í bílskúr. Bílskúrinn er með rúmgóðu millilofti og miklu skápaplássi.
Sjálfvirkur opnari er á bílskúrshurð og hleðslustöð fyrir utan, lakkað steingólf.
Efri hæðin er opin og björt með stórum gluggum, mikilli lofthæð og innfelldri LED lýsingu. Stofa / borðstofa og eldhús flæða fallega saman í eina heild. Nýleg borðplata, innbyggður ísskápur, spanhelluborð, háfur, ofn og combi ofn í vinnuhæð ásamt góðum búrskáp og innbyggðri uppþvottavél. Dornbracht blöndunartæki. 
Á hæðinni er einnig fallegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtu, vegghengdu salerni, innréttingu og vönduðum tækjum frá Vola.
Neðri hæð er með þremur svefnherbergjum, einu baðherbergi og rúmgóðu holi. Svefnherbergin eru öll rúmgóð með nýlegu harðparketi á gólfum. Hjónaherbergið er sérstaklega rúmgott með fataherbergi inn af. Baðherbergið er glæsilegt með vegghengdu salerni, frístandandi baðkari, sturtu, innréttingu og vönduðum Vola blöndunartækjum.

Húsið er staðsteypt með einhalla þaki, Einangrað að innan og með hita í gólfum. 
Að utan er húsið múrað og málað, gras í garði og bílaplan steypt og slípað með snjóbræðslukerfi.
Inntaksrými hússins er rúmgott og nýtist einnig sem geymsla.
Sjónvarpsholi neðri hæðar var breytt í svefnherbergi og nýtt gólfefni sett á alla hæðina samtímis fyrir u.þ.b 2 árum, nýir fataskápar í öll barnaherbergi og eldhúsinnrétting stækkuð.

Húsið er frábærlega staðsett í þessu nýlega og fjölskylduvæna hverfi, í göngufæri við skóla og leikskóla. Örstutt er í íþróttamiðstöð Hauka og Ásvallalaug og liggur göngustígur beina leið þangað. Útivistarsvæði allt í kring.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is og Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. des. 2022
84.850.000 kr.
125.000.000 kr.
199.1 m²
627.825 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

STOFAN Fasteignasala Hafnarfjarðar

Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfirði