Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Elísabet Kvaran
Karólína Íris Jónsdóttir
Vista
raðhús

Hrafnaborg 10B

190 Vogar

52.900.000 kr.

777.941 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2515563

Fasteignamat

46.500.000 kr.

Brunabótamat

38.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
68 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Garður
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
Opið hús: 22. apríl 2025 kl. 17:30 til 18:00

Lýsing

Viltu fasteignasala kynnir: Fallegt, bjart og vel skipulagt 2ja herbergja 68,4 m2 raðhús á einni hæð með mikilli lofthæð sem gerir húsið einstaklega skemmtilegt og bjart. Stór afgirt verönd með heitum potti.
Eignin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi, stofu ásamt geymslulofti.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100 elisabet@viltu.is

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939 karolina@viltu.is

Lýsing:

Forstofa: Anddyri með fataskáp parket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri innréttingu með vönduðum tækjum. Innbyggð uppþvottavél, og innbyggður ísskápur með frysti, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á stóra verönd með heitum potti.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum. Stigi upp á rúmgott geymsluloft.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, vandaðri innréttingu við vask, “walk in” sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Frágangur utanhúss:
Útveggir eru úr forsmíðuðum einingum, léttbyggðir, þ.e. 45x145 mm timburgrind með 6“ einangrun í útveggjagrind.
Klætt er utan á timburgrind með 9mm krossviði og er hann varinn með öndunardúk.
Ysta byrði útveggja er lárétt 18mm lituð bárujárnsklæðning og að hluta lárétt nótuð
timburklæðning.
Veggir á milli íbúða eru léttir timburveggir með brunaþol sem einnig uppfylla kröfur fyrir lofthljóðeinangrun innbyrðis á milli íbúðareininga.
Þak er timburþak/sperruþak, pappalagt og heilklætt með 18mm litaðri bárujárnsklæðningu.
Þak er einangrað með 220mm steinullareinangrun. Gluggar, hurðir eru ál/trégluggar
frá viðurkenndum framleiðanda. Sökklar eru einangraðir bæði að innan og utan með 65mm frauðplast einangrun. Botnplata er einangruð með 75mm frauðplast einangrun. Ídráttarrör út í bílaplan fyrir mögulega rafhleðslu fylgir.

Sameiginlegt sorptunnuskýli á steyptri plötu fyrir allar íbúðirnar er staðsett við enda bílastæða.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

img
Elísabet Kvaran
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Viltu fasteignir

Viltu fasteignir

phone
img

Elísabet Kvaran

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. des. 2021
28.350.000 kr.
39.900.000 kr.
68.4 m²
583.333 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Viltu fasteignir

phone

Elísabet Kvaran