Lýsing
Eignin Álhella 32 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-6158, birt stærð 50.0 fm.
28 einingar 50 fm hver, skráð sem geymsluhúsnæði.
2 einingar 60 fm hver, skráð sem geymsluhúsnæði.
Hverju rými verður skilað með niðurfalli, vask, heitu og köldu vatni. Lýsing í lofti, ofn til upphitunar. WC stútur í gólfi. Rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni ásamt einum 3ja fasa rafmagnstengli við töflu. Rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaropnara, ljósarofi og rafmagnstengill nálægt hurð. Iðnaðarhurð breidd 280 cm., hæð 2,80 cm. Hurðaopnari fylgir. Sér gönguhurð er þar við hliðina og opnanlegur gluggi þar fyrir ofan.
Útveggir:
Allir veggir samstæðunnar eru gerðir úr forgerðum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3 klædd með a.m.k. 0,6mm þykku aluzinki með innbrendum lit). Veggeiningar eru 100mm á þykkt.
Þakeiningar:
Þakeiningar eru gerðar úr 120mm þykkum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3).
Gólf:
Gólf er staðsteypt, vélslýpað með niðurfalli.
Raflagnir:
Raflagnir eru utanáliggjandi á veggjum og eru sýnilegar, 3ja fasa rafmagn í rafmagnstöflu í hverju rými. Sér rafmagnsmælir verður fyrir hvert bil.
Vatnslagnir:
Vaskur og heitt/kalt vatn tengt. Ofn í hverju rými. Hiti er sameiginlegur og sér húsfélagið um innheimtu húsgjalda til að m.a. mæta þeim kostnaði.
Snyrting:
Stútur í gólfi fyrir wc.
Bílastæði:
Bílastæði á lóð eru sameiginleg.
Umgengisreglur:
Óheimilt er að geyma muni utandyra á lóðinni og er hverjum eiganda heimilt að henda öllu því sem staðset er utandyra á lóð án frekari aðvörunnar þar um.
Verð kr. 19.900.000
Greiðslutilaga:
Greitt við kaupsamning kr. 9.000.000
Greitt við afhendingu kr. 10.000.000
Greitt við afsal kr. 900.000
Afhending er í lok júni 2025
Lóð verður malbikuð og svæðið er girt af.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Magnús Einarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 699-8282, tölvupóstur ragnar@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.