Upplýsingar
Byggt 2025
106 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.Orkureitur - Suðurlandsbraut 40-505 , íbúð 05-05 er 3 herbergja, 106.0 fm íbúð.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Rögnvaldur Örn Jónsson, Löggiltur fasteignasali í síma 6603452, rognvaldur@eignamidlun.is
Smellið hér til að skoða heimasíðuverkefnisins Orkureiturinn.is
**Sækja söluyfirlit**
Orkureitur - Suðurlandsbraut 40-505 , íbúð 05-05 er 106.0 fm 3 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn.
Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 106.0 fm með sérgeymslu í kjallara hússins.
Innréttingaþema er Safír harmónía (500). Val þegar kemur að innréttingum og frágangi. Fimm innréttingaþemu frá Nobilia (Lser). Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að afhending fyrstu íbúða við Suðurlandsbraut 38-44 í nóvember/desember 2025 (D1/D2) og í janúar 2026 (D3) og við Grensásveg 2-6 í febrúar/mars 2026 (D4/D5).
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.
Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.
Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar:
Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 895-1427, magnus@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 839-1600, gunnarbergmann@eignamidlun.is
Ólafur H Guðgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Oddný María Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali, sími 777-3711, oddny@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali, sími 864-5464, gudlaugur@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook