Opið hús: Flatahraun 1, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 03 06. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 6. maí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Húsið er byggt árið 2006, steinsteypt og samanstendur af kjallara, sem er að stærstum hluta bílageymsla, og fimm hæðum. Samtals fjörtíu og sjö íbúðir. Tveir stigagangar eru í húsinu og tvær lyftur. Hverri íbúð fylgir eitt bílastæði í bílakjallara. Einnig er bílastæði framan við inngang í húsið alls fjörtíu og sjö.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 80.2 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi og góðan yfirhafnaskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús í góðu alrými með parket á gólfi. Útgengt á rúmgóðar svalir með svalalokun.
Eldhús er L-laga með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og háf yfir helluborði.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er við forstofu með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með snyrtilegri innréttingu, nudd sturtuklefa, upphengdu salerni, flísalagt í hólf og gólf með gólfhita og handklæðaofn.
Þvottahús/geymsla með flísar á gólfi, gólfhita og skolavask.
Geymsla við forstofu með parket á gólfi er rúmgóð með glugga og gæti auðveldlega nýst sem svefnherbergi.
Sérstæði í lokaðri bílageymslu. Bílaþvottaaðstaða í bílageymslu.
Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Húsið er miðsvæðis í Hafnarfirði og stutt í alla helstu þjónustu, grunn- og leikskóla.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.